Niðurstöður skýrsluhalds nautgriparæktarinnar fyrir nýliðinn júní

Lexus frá Hvammi á Galmaströnd, undan Magna 20002 og Gleði 1350. Mynd frá Nautastöðinni á Hesti.
Lexus frá Hvammi á Galmaströnd, undan Magna 20002 og Gleði 1350. Mynd frá Nautastöðinni á Hesti.

Niðurstöður skýrslna nautgriparæktarinnar síðustu 12 mánuði, þegar júnímánuður hefur runnið sitt skeið, hafa verið birtar á vef okkar. Niðurstöðurnar byggja á þeim skýrslum sem hafði verið skilað þegar nokkuð var liðið á dag þann 11. júlí. Hér á eftir er farið yfir nokkur atriði úr niðurstöðunum en mun meiri upplýsingar er að finna í töflum þeim sem tengill er í neðst í fréttinni.

Þegar niðurstöðurnar voru reiknaðar hafði verið skilað mjólkurskýrslum frá 422 búum en uppgjör kjötframleiðslunnar nær nú til 115 búa þar sem framleitt var nautakjöt en ekki stunduð framleiðsla mjólkur til sölu.

Reiknuð meðalnyt 23.234,5 árskúa á búunum 422 var 6.547 kg. eða 6.799 kg. OLM (af orkuleiðréttri mjólk) á uppgjörstímabilinu. Meðalfjöldi árskúa á fyrrnefndum 422 búum var 55,1.

Mest meðalnyt árskúa nú var, eins og við lok júní, á búi Helgu Bjargar Helgadóttur á Syðri-Hömrum 3 í Ásahreppi, Rang. þar sem meðalárskýrin mjólkaði 8.645 kg. að jafnaði á síðustu 12 mánuðum. Annað í röðinni, einnig eins og fyrir mánuði síðan, var bú Göngustaða ehf. á Göngustöðum í Svarfaðardal þar sem meðalárskýrin mjólkaði 8.566 kg. á síðustu 12 mánuðum. Þriðja var síðan bú Brynjólfs og Piu – Hellisbúsins í Kolsholti í Flóa þar sem meðalnyt árskúa reyndist 8.563 kg. á uppgjörstímabilinu.

Áður um töluð breyting á birtingu lista yfir hæstu 12 mánaða afurðir mjólkurkúa er komin til að vera og er birtist listinn í nýja horfinu í annað sinn hér á vef okkar. Listinn geymir hæstu 12 mánaða afurðir sem skráðar hafa verið það sem af er þessu ári, burtséð frá því við lok hvaða mánaðar innan ársins hver og ein kýr náði mestum 12 mánaða afurðum.

Hæstu skráðu 12 mánaða nyt það sem af er árinu á Droplaug 875 (f. Dropi 10077) í Dalbæ í Flóa sem náði 15.164 kg. nyt við lok febrúar sl. Önnur í röðinni á þessum lista er Klauf 2487 (f. Strákur 10011) í Lambhaga á Rangárvöllum en hæsta 12 mánaða nyt hennar er 15.136 kg. og náðist hún við lok janúar sl. Þriðja kýrin á þessum lista að þessu sinni er Sína 799 (f. Sjarmi 12090) á Grund í Svarfaðardal sem náði 15.078 kg. nyt eftir 12 mánuði nú við lok júní.

Það sem af er þessu ári hafa 35 kýr náð skráðri 13.000 kg. nyt og þar yfir á 12 mánaða tímabili. Af þeim hópi hafa átta kýr skilað yfir 14.000 kg. mjólkur á 12 mánuðum og fjórar þeirra hafa komist yfir 15.000 kg. markið.

Meðalfjöldi kúa á þeim 116 hreinu kjötframleiðslubúum sem uppgjörið nær yfir reiknaðist 30,6 við lok júní en árskýrnar á þeim búum voru að meðaltali 26,9 á þeim tíma. Meðalkjötframleiðsla á þessum búum var 7.440,9 kg. á undanförnum 12 mánuðum.

Meðalfallþungi 9.343 ungnauta á aldrinum 12-30 mánaða, sem slátrað var frá öllum þeim búum sem uppgjörið nær yfir, hvort sem um ræðir bú þar sem stunduð var kjötframleiðsla eða mjólkurframleiðsla, eða blanda af hvoru tveggja, undanfarna 12 mánuði, var 257,0 kg. og meðalaldur þeirra gripa við slátrun var 733,3 dagar.

Kjötframleiðslubúið þar sem meðalvöxtur sláturgripa á síðustu 12 mánuðum var mestur, var Reykir í hinum gamla Lýtingsstaðahreppi í Skagafirði þar sem meðalgripurinn varð 489 daga gamall og óx að meðaltali 655 g. á dag. Næst í röðinni var búið á Efstalandi í Öxnadal þar sem hver meðalgripur óx að jafnaði um 627 g. á 460 dögum. Þriðja búið á þessum lista nú að liðnum júní er Nýibær undir Eyjafjöllum þar sem 596 daga gamlir gripir náðu að vaxa að meðaltali 588 g. á dag.

Þegar litið er á meðalfallþunga sláturgripa var hann mestur á Breiðabóli á Svalbarðsströnd þar sem skrokkþungi 37 gripa varð að meðaltali 389,9 kg á 810 vaxtardögum. Næstur í röðinni var Saurbær í hinum gamla Lýtingsstaðahreppi í Skagafirði þar sem meðalfallþungi 16 gripa eftir 712 vaxtardaga reiknaðist 367,6 kg. Þriðja búið í röðinni nú varð Ytri-Hólmur I í Hvalfjarðarsveit þar sem skrokkþungi 12 gripa varð 366,8 kg. að meðaltali eftir 721 vaxtardag.

Aftur má minna á að það sem hér hefur verið rakið er aðeins lítið brot af því sem er að finna á þeim listum sem birtir eru.

Þess er vert að geta hér að endingu að skjalið sem geymir upplýsingar um fjölda dætra undan þeim nautum sem eiga fimm eða fleiri dætur á lista kúa sem skiluðu meiri en 9000 kg. nyt, er ekki uppfært í hverjum mánuði.

Sjá nánar:

rml.is/is/forrit-og-skyrsluhald/nautgriparaekt/huppais-nidurstodur-2025