Amor frá Miðdal í Kjós, sonur Grána 23010 og Amöbu 724. Mynd frá Nautastöðinni á Hesti.
Niðurstöður skýrslna nautgriparæktarinnar fyrir síðastliðna 12 mánuði, nú þegar nóvembermánuður er á enda, hafa verið birtar á vef okkar. Niðurstöðurnar byggja á þeim skýrslum sem hafði verið skilað þegar komið var fram á miðjan dag þann 11. desember. Hér á eftir er farið yfir nokkur atriði úr niðurstöðunum en meiri upplýsingar má finna í töflunum sem tengill er í neðst í fréttinni.
Þegar niðurstöðurnar voru reiknaðar hafði verið skilað mjólkurskýrslum frá 428 búum en uppgjör kjötframleiðslunnar nær að þessu sinni til 112 búa þar sem framleitt var nautakjöt en ekki stunduð framleiðsla mjólkur til sölu.
Reiknuð meðalnyt 24.209,6 árskúa á búunum 428 var 6.630 kg. eða 6.883 kg. OLM (af orkuleiðréttri mjólk) á uppgjörstímabilinu, desember 2024 til nóvember 2025. Meðalfjöldi árskúa á fyrrnefndum 428 búum var 56,6.
Mest meðalnyt árskúa að þessu sinni var á búi Göngustaða ehf. á Göngustöðum í Svarfaðardal þar sem 67,7 árskýr mjólkuðu að jafnaði 8.691 kg. á síðustu 12 mánuðum. Næstmest var meðalnytin á búi Garðars Guðmundssonar í Hólmi í Landeyjum þar sem 80,3 árskýr mjólkuðu 8.654 kg. á uppgjörstímabilinu. Þriðja í röðinni var bú Brynjólfs og Piu, Péturs og Heinz – Hellisbúsins ehf. í Kolsholti 1 í Flóa þar sem meðalafurðir 41,7 árskúa reiknuðust 8.560 kg. mjólkur. Þetta eru sömu búin og í sömu röð og sátu efst á listanum fyrir mánuði síðan.
Hér má enn geta þess að við höfum leitast við að halda þeirri viðmiðun að búin sem birtast á listanum hafi verið þátttakendur í afurðaskýrsluhaldi mjólkurframleiðenda í það minnsta nærri því ár, en á það viðmið reynir sjaldan því ný bú eru sjaldséð á listanum.
Hæstu skráðu 12 mánaða nyt það sem af er ári heldur Plóma 2686 (f. Jiri 1438, sonur Kaktusar 16003 og dóttursonur Sands 07014. Móðurfaðir Plómu er Dalur 16025), í Gunnbjarnarholti en hæstu 12 mánaða nyt náði hún við lok ágúst síðastliðins, 16.779 kg. Önnur á þessum lista er Kló 1213 (f. Golíat 15018) í Hrepphólum í Hrunamannahreppi sem náði 15.249 kg. nyt á 12 mánuðum nú við lok nóvember. Þriðja kýrin er Húma 759 (f. Hrímnir 693, sonur Silfra 631 sem var sonarsonur Kambs 06022 og dóttursonur Silfra 09004. Móðurfaðir Húmu er Gýmir 11007) í Dalbæ 1 í Hrunamannahreppi, en upprunnin í Skollagróf í sömu sveit, sem náði 15.235 kg. 12 mánaða nyt við lok október síðastliðins.
Það sem af er þessu ári hafa 69 kýr náð skráðri 13.000 kg. nyt og þar yfir á 12 mánaða tímabili. Af þeim hópi hafa 18 náð nyt yfir 14.000 kg. á 12 mánuðum og sjö þessara 18 kúa hafa skilað hærri nyt en 15.000 kg. á sambærilegum tíma.
Meðalfjöldi kúa á þeim 112 hreinu kjötframleiðslubúum sem kjötuppgjörið nær yfir var 30,2 við lok nóvember en árskýrnar á þeim búum voru að meðaltali 27,1 á uppgjörstímabilinu. Meðalkjötframleiðsla á þessum búum var 7.504,0 kg. á umræddum 12 mánuðum.
Meðalfallþungi 9.341 ungnauts á aldrinum 12-30 mánaða, sem slátrað var frá öllum þeim búum sem uppgjörið nær yfir, hvort sem um ræðir bú þar sem stunduð var kjötframleiðsla eða mjólkurframleiðsla, eða blanda af hvoru tveggja, undanfarna 12 mánuði, var 260,1 kg. og meðalaldur þeirra gripa við slátrun var 734,2 dagar.
Kjötframleiðslubúið þar sem meðalvöxtur sláturgripa á síðustu 12 mánuðum reiknaðist mestur, var á Efstalandi í Öxnadal en þar uxu 39 gripir að meðaltali 699 g. á 484 dögum. Næst í röðinni var búið á Reykjum í hinum gamla Lýtingsstaðahreppi í Skagafirði þar sem meðalgripurinn óx að meðaltali 674 g. á 533 dögum. Þriðja á listanum nú var búið í Nýjabæ undir Eyjafjöllum þar sem 535 daga gamlir gripir uxu að jafnaði um 642 g. á dag. Hér hefur röð efstu búa ekki breyst frá því fyrir mánuði síðan.
Meðalfallþungi sláturgripa reiknaðist mestur á Breiðabóli á Svalbarðsströnd þar sem 35 gripir vigtuðu að meðaltali 386,3 kg. eftir 827 vaxtardaga. Næstmestur var meðalfallþunginn á Reykjum í hinum gamla Lýtingsstaðahreppi, 373,3 kg. á 28 gripum, eftir 533 vaxtardaga. Þriðja búið í röðinni hér reyndist vera á Ytra Hólmi I þar sem fallþungi 12 gripa var að jafnaði 370,7 kg. eftir 726 vaxtardaga. Hér má segja hið sama og um meðalvöxt gripa, sömu bú í sömu röð sjást hér í efstu sætunum og í uppgjöri októbermánaðar.
Sjá nánar:
rml.is/is/forrit-og-skyrsluhald/nautgriparaekt/huppais-nidurstodur-2025