Niðurstöður skýrsluhalds nautgriparæktarinnar fyrir nýliðinn október

Svanur frá Búrfelli í Svarfaðardal, sonur Grána 23010 og Brúðu 635. Mynd frá Nautastöðinni á Hesti.
Svanur frá Búrfelli í Svarfaðardal, sonur Grána 23010 og Brúðu 635. Mynd frá Nautastöðinni á Hesti.

Niðurstöður skýrslna nautgriparæktarinnar fyrir síðastliðna 12 mánuði, nú þegar októbermánuður hefur runnið sitt skeið, má nú finna á vef okkar. Niðurstöðurnar byggja á þeim skýrslum sem hafði verið skilað þegar komið var fram undir hádegi þann 11. nóvember. Hér á eftir er farið yfir nokkur atriði úr niðurstöðunum en meiri upplýsingar liggja fyrir í töflum þeim sem tengill er í neðst í fréttinni.

Þegar niðurstöðurnar voru reiknaðar hafði verið skilað mjólkurskýrslum frá 429 búum en uppgjör kjötframleiðslunnar nær að þessu sinni til 112 búa þar sem framleitt var nautakjöt en ekki stunduð framleiðsla mjólkur til sölu.

Reiknuð meðalnyt 24.152,8 árskúa á búunum 429 var 6.610 kg. eða 6.862 kg. OLM (af orkuleiðréttri mjólk) á uppgjörstímabilinu, nóvember 2024 til október 2025. Meðalfjöldi árskúa á fyrrnefndum 429 búum var 56,3.

Mest meðalnyt árskúa reyndist vera á búi Göngustaða ehf. á Göngustöðum í Svarfaðardal þar sem 68,5 árskýr skiluðu að jafnaði 8.714 kg. á síðustu 12 mánuðum. Næst á eftir kom bú Garðars Guðmundssonar í Hólmi í Landeyjum þar sem 80,7 árskýr mjólkuðu að meðaltali 8.654 kg. á uppgjörstímabilinu. Þriðja í röðinni var bú Brynjólfs og Piu – Hellisbúsins ehf. í Kolsholti 1 í Flóa þar sem meðalafurðir 41,7 árskúa reiknuðust 8.531 kg.

Hér má enn nefna að við höfum leitast við að halda þeirri viðmiðun að búin sem birtast á listanum hafi verið þátttakendur í afurðaskýrsluhaldi mjólkurframleiðenda í það minnsta nærri því ár, en á það viðmið reynir sjaldan því ný bú eru fáséð á listanum.

Hæstu skráðu 12 mánaða nyt það sem af er ári heldur Plóma 2686 (f. Jiri 1438, sonur Kaktusar 16003 og dóttursonur Sands 07014. Móðurfaðir Plómu er Dalur 16025), í Gunnbjarnarholti en hæstu 12 mánaða nyt náði hún við lok ágúst síðastliðins, 16.779 kg. Önnur á þessum lista er Droplaug 875 (f. Dropi 10077) í Dalbæ í Flóa sem náði 15.164 kg. nyt við lok febrúar sl. Þriðja er síðan Klauf 2487 (f. Strákur 10011) í Lambhaga á Rangárvöllum en hæsta 12 mánaða nyt hennar er 15.136 kg. og náði hún því marki í lok janúar síðastliðins. Þessar þrjár kýr sitja hér efstar eins og fyrir mánuði síðan. Þess má geta að fjórða kýrin á listanum er Kló 1213 (f. Golíat 15018) í Hrepphólum en hún náði því sæti nú í október með 15.095 kg. í afurðir síðustu 12 mánuðina.

Það sem af er þessu ári hafa 59 kýr náð skráðri 13.000 kg. nyt og þar yfir á 12 mánaða tímabili. Af þeim hópi hafa 15 náð nyt yfir 14.000 kg. á 12 mánuðum og nú hafa sex þessara 15 kúa skilað hærri nyt en 15.000 kg. á sambærilegum tíma. Til viðbótar má ítreka að hæsta skráða nyt Plómu 2686 í Gunnbjarnarholti 2 á 12 mánaða tímabili, er talsvert á sautjánda þúsund kg. eins og fram hefur komið.

Meðalfjöldi kúa á þeim 112 hreinu kjötframleiðslubúum sem kjötuppgjörið nær yfir var 31,1 nú við lok október en árskýrnar á þeim búum voru að meðaltali 27,2 á tímabilinu. Meðalkjötframleiðsla á þessum búum var 7.919,4 kg. á umræddum 12 mánuðum.

Meðalfallþungi 9.412 ungnauta á aldrinum 12-30 mánaða, sem slátrað var frá öllum þeim búum sem uppgjörið nær yfir, hvort sem um ræðir bú þar sem stunduð var kjötframleiðsla eða mjólkurframleiðsla, eða blanda af hvoru tveggja, undanfarna 12 mánuði, var 258,8 kg. og meðalaldur þeirra gripa við slátrun var 734,7 dagar.

Kjötframleiðslubúið þar sem meðalvöxtur sláturgripa á síðustu 12 mánuðum reiknaðist mestur, var á Efstalandi í Öxnadal en þar uxu 47 gripir að meðaltali 682 g. á 484 dögum. Næst í röðinni var búið á Reykjum í hinum gamla Lýtingsstaðahreppi í Skagafirði þar sem meðalgripurinn óx að meðaltali 679 g. á 529 dögum. Þriðja á listanum nú var búið í Nýjabæ undir Eyjafjöllum þar sem 534 daga gamlir gripir uxu að jafnaði um 636 g. á dag.

Meðalfallþungi sláturgripa reiknaðist mestur á Breiðabóli á Svalbarðsströnd þar sem 31 gripur vigtaði að meðaltali 385,7 kg. eftir 821 vaxtardag. Næstmestur var meðalfallþunginn á Reykjum í hinum gamla Lýtingsstaðahreppi, 373,0 kg. á 22 gripum, eftir 529 vaxtardaga. Þriðja búið í röðinni hér reyndist vera á Ytra Hólmi I þar sem fallþungi 11 gripa var að jafnaði 372,5 kg. eftir 721 vaxtardag.

Sjá nánar:

rml.is/is/forrit-og-skyrsluhald/nautgriparaekt/huppais-nidurstodur-2025