Niðurstöður skýrsluhalds nautgriparæktarinnar í nýliðnum nóvember

Tvistur frá Svertingsstöðum 2 í Eyjafjarðarsveit, sonur Hæls 14008 og Sjöu 777.
Tvistur frá Svertingsstöðum 2 í Eyjafjarðarsveit, sonur Hæls 14008 og Sjöu 777.

Niðurstöður skýrsluhalds nautgriparæktarinnar fyrir nóvember, hafa nú verið birtar á vef okkar. Niðurstöður skýrslnanna byggjast á skilum eins og þau voru síðdegis þann 13. desember.

Þegar niðurstöðurnar sem nú hafa verið birtar voru reiknaðar höfðu borist mjólkurskýrslur frá 498 búum en uppgjör kjötframleiðslunnar náði til 120 búa þar sem var framleitt nautakjöt en ekki stunduð framleiðsla mjólkur til sölu. Reiknuð meðalnyt 24.845,6 árskúa á búunum 498 reyndist 6.369 kg eða 6.488 kg OLM (af orkuleiðréttri mjólk) síðustu 12 mánuðina. Meðalfjöldi árskúa á fyrrgreindum búum var 49,9.

Mest meðalnyt árskúa síðustu 12 mánuði var á búi Guðrúnar og Gunnars á Búrfelli í Svarfaðardal, 8.921 kg. Næst á eftir var bú Guðlaugar og Eybergs á Hraunhálsi í Helgafellssveit þar sem meðalnyt eftir árskú reiknaðist 8.588 kg. á tímabilinu. Þriðja var bú Guðjóns og Helgu á Syðri-Hömrum 3 í Ásahreppi í Rangárvallasýslu þar sem hver árskýr skilaði að meðaltali 8.437 kg. Í fjórða sæti reyndist vera bú Gísla og Jónínu á Stóru-Reykjum í Flóahreppi þar sem meðalnyt árskúa reiknaðist 8.354 kg. á síðustu 12 mánuðum. Fimmta var bú Hákonar og Þorbjargar á Svertingsstöðum 2 í Eyjafjarðarsveit þar sem hver árskýr mjólkaði að meðaltali 8.333 kg. á umræddu 12 mánaða tímabili.

Nythæsta kýrin síðustu 12 mánuði var Bambaló 306 (f. Bambi 08049) á Brúsastöðum í Vatnsdal sem mjólkaði 14.061 kg. á uppgjörstímabilinu. Önnur að þessu sinni varð Fata 2106 (f. Sjarmi 1290) frá Skáldabúðum í hinum forna Gnúpverjahreppi, sem mjólkaði 13.875 kg. á umræddu tímabili. Hið næsta henni kom Ríkey 691 (f. Bingó 607, sonur Bamba 08049 og dóttursonur Flóa 02029) en hún mjólkaði 13.518 kg. á síðustu 12 mánuðum. Fjórða kýrin í röðinni var Fórn 868 (f. Skalli 11023) í Flatey á Mýrum við Hornafjörð, sem mjólkaði á tímabilinu 13.420 kg. Fimmta kýrin að þessu sinni var Mús 4, nr. 2049 (f.Lögur 07047) í Þverholtum á Mýrum vestra, sem skilaði 13.148 kg. mjólkur síðustu 12 mánuðina.

Alls náðu 127 kýr á mjólkurframleiðslubúunum sem afurðaskýrslum fyrir nóvember hafði verið skilað frá síðdegis þ. 13. desember, að mjólka 11.000 kg. eða meira á síðustu 12 mánuðum. Af þeim mjólkuðu 39 yfir 12.000 kg. á uppgjörstímabilinu. Af þeim hópi skiluðu átta meiri nyt en 13.000 kg. og ein þeirra mjólkaði yfir 14.000 kg. eins og sjá má hér á undan.

Meðalfjöldi kúa á hreinu kjötframleiðslubúunum reiknaðist 26,1 en árskýrnar þar voru við lok nóvember 23,4 að jafnaði. Meðalkjötframleiðsla á þessum búum sl. 12 mánuði reyndist 5.730,8 kg.

Meðalfallþungi 9.555 ungnauta á aldrinum 12-30 mánaða, skráðra í slátrun frá öllum búum, undanfarna 12 mánuði var 255,7 kg. og reiknaður meðalaldur þeirra gripa við slátrun var 751,4 dagar.

 

Sjá nánar:

Niðurstöður skýrsluhalds nautgriparæktarinnar