Niðurstöður skýrsluhalds nautgriparæktarinnar nú við lok febrúar

Múli frá Súluholti í Flóa, sonur Seims 23021 og Íru 906. Mynd frá Nautastöðinni á Hesti.
Múli frá Súluholti í Flóa, sonur Seims 23021 og Íru 906. Mynd frá Nautastöðinni á Hesti.

Niðurstöður skýrslna nautgriparæktarinnar fyrir síðastliðna 12 mánuði, nánar til tekið við lok febrúar, hafa verið birtar á vef okkar. Niðurstöðurnar byggja á þeim skýrslum sem hafði verið skilað að morgni þess 11. mars. Hér á eftir er farið yfir nokkur atriði úr niðurstöðunum en meiri upplýsingar má finna í töflunum sem finna má tengil í neðst í fréttinni.

Þegar niðurstöðurnar voru reiknaðar hafði verið skilað mjólkurskýrslum frá 428 búum en uppgjör kjötframleiðslunnar nær að þessu sinni til 112 búa þar sem framleitt var nautakjöt en ekki stunduð framleiðsla mjólkur til sölu.

Reiknuð meðalnyt 24.360,4 árskúa á búunum 428 var 6.674 kg. eða 6.945 kg. OLM (af orkuleiðréttri mjólk) á uppgjörstímabilinu, mars 2025 til febrúar 2026. Meðalfjöldi árskúa á fyrrnefndum 428 búum reyndist nú 56,9.

Mest meðalnyt árskúa að þessu sinni var á búi Eyvindar og Aðalbjargar í Stóru-Mörk 1 undir Eyjafjöllum, þar sem 31,6 árskýr skiluðu að meðaltali 8.810 kg. mjólkur síðastliðna 12 mánuði. Næst á eftir var bú Garðars Guðmundssonar í Hólmi í Landeyjum þar sem 77,2 árskýr mjólkuðu 8.630 kg. á uppgjörstímabilinu. Þriðja var bú Guðrúnar og Gunnars á Búrfelli í Svarfaðardal þar sem meðalafurðir 53,4 árskúa reiknuðust 8.526 kg.

Ekki skaðar að minna enn á að við höfum leitast við að halda þeirri viðmiðun að búin sem birtast á listanum hafi verið þátttakendur í afurðaskýrsluhaldi mjólkurframleiðenda í það minnsta nærri því ár.

Hæstu skráðu 12 mánaða nyt það sem af er þessu ári á Húma 759 (f. Hrímnir 693, sonur Silfra 631 sem var sonarsonur Kambs 06022 og dóttursonur Silfra 09004. Móðurfaðir Húmu er Gýmir 11007) í Dalbæ 1 í Hrunamannahreppi, upprunnin í Skollagróf, en á nú við lok febrúar hafði hún mjólkað samtals 15.525 kg. á síðustu 12 mánuðum. Önnur í röðinni hér er Branda (f. Sjóli 18006) í Stóru-Mörk 1 en hún mjólkaði samtals 14.717 kg. á tímabilinu febrúar 2025 til janúar 2026. Hin þriðja í röðinni að þessu sinni er Vetrarsól 2816 (f. Risi 15014) í Skáldabúðum 2 í Skeiða- og Gnúpverjahreppi en 12 mánaða nyt hennar reiknaðist 14.520 kg. við lok janúar sl.

Nú við lok febrúar hafa 26 kýr náð skráðri 13.000 kg. nyt og þar yfir á 12 mánaða tímabili. Af þeim hafa sjö náð 12 mánaða nyt yfir 14.000 kg.

Meðalfjöldi kúa á þeim 112 hreinu kjötframleiðslubúum sem kjötuppgjörið nær yfir var 29,5 við lok febrúar en árskýrnar á þeim búum voru að meðaltali 28,0 á uppgjörstímabilinu. Meðalkjötframleiðsla á þessum búum var 7.113,1 kg. á umræddum 12 mánuðum.

Meðalfallþungi 9.129 ungnauta á aldrinum 12-30 mánaða, sem slátrað var frá öllum þeim búum sem skýrslur bárust frá, hvort sem um ræðir bú þar sem stunduð var kjötframleiðsla eða mjólkurframleiðsla, eða blanda af hvoru tveggja, undanfarna 12 mánuði, var 261,7 kg. og meðalaldur þeirra gripa við slátrun var 736,8 dagar.

Kjötframleiðslubúið þar sem meðalvöxtur sláturgripa á síðustu 12 mánuðum reiknaðist mestur, var Efstaland í Öxnadal en þar uxu 35 gripir að meðaltali 714 g. á 485 dögum. Næst í röðinni var búið á Reykjum í hinum gamla Lýtingsstaðahreppi í Skagafirði þar sem meðalgripurinn óx að meðaltali 679 g. á 537 dögum. Þriðja á listanum nú var búið í Nýjabæ undir Eyjafjöllum þar sem 528 daga gamlir gripir uxu að jafnaði um 650 g. á dag.

Meðalfallþungi sláturgripa reiknaðist mestur á Breiðabóli á Svalbarðsströnd þar sem 31 gripur vigtaði að meðaltali 378,3 kg. eftir 814 vaxtardaga. Næstmestur var meðalfallþunginn á Reykjum í hinum gamla Lýtingsstaðahreppi, 378,1 kg. á 24 gripum, eftir 537 vaxtardaga. Þriðja búið í röðinni var á Ytra Hólmi I þar sem fallþungi 12 gripa var að jafnaði 373,7 kg. eftir 720 vaxtardaga.

Sjá nánar hér.