Þessa snotru mynd tók Halla Eygló Sveinsdóttir
Niðurstöður skýrslna nautgriparæktarinnar fyrir síðastliðna 12 mánuði, nú þegar júlímánuður er liðinn og byrjað að dimma á kvöldin, hafa verið birtar á vef okkar. Niðurstöðurnar byggja á þeim skýrslum sem hafði verið skilað síðdegis þann 17. ágúst. Hér á eftir er farið yfir nokkur atriði úr niðurstöðunum en meiri upplýsingar má finna í töflunum sem finna má tengil í neðst í fréttinni.
Þegar niðurstöðurnar voru reiknaðar hafði verið skilað mjólkurskýrslum frá 431 búi en uppgjör kjötframleiðslunnar nær til 114 búa þar sem framleitt var nautakjöt en ekki stunduð framleiðsla mjólkur til sölu.
Reiknuð meðalnyt 24.956,2 árskúa á búunum 431 var 6.723 kg. eða 6.995 kg. OLM (af orkuleiðréttri mjólk) á uppgjörstímabilinu, ágúst 2025 til júlí 2026. Meðalfjöldi árskúa á fyrrnefndum 431 búi reyndist vera 57,9.
Mest meðalnyt árskúa reiknaðist að þessu sinni á búi Kotakinnar ehf. í Lundi í Lundarreykjadal þar sem 42,2 árskýr mjólkuðu að meðaltali 8,812 kg. Annað í röðinni núna var Hvanneyrarbúið ehf. á Hvanneyri í Andakíl þar sem meðalnyt 64,2 árskúa var 8.791 kg. á uppgjörstímabilinu. Þriðja búið að liðnum júlí var bú Brynjólfs, Piu, Péturs og Heinz – Hellisbúsins ehf., í Kolsholti 1, þar sem 31,2 árskýr mjólkuðu að jafnaði 8.509 kg. síðastliðna 12 mánuði.
Þó ef til vill sé þess ekki þörf, þá má ef til vill minna á að hér höfum við leitast við að halda þeirri viðmiðun að búin sem birtast á listanum hafi verið þátttakendur í afurðaskýrsluhaldi mjólkurframleiðenda í það minnsta upp undir eitt ár.
Hæstu skráðu 12 mánaða nyt það sem af er þessu ári, 2026, á Sumarlín 2499 (f. Balti 17002) í Gunnbjarnarholti 2 í Skeiða- og Gnúpverjahreppi sem mjólkaði 15.906 kg. á tímabilinu júní 2025 til maí 2026. Önnur á þeim sama lista er Fylling 3372 (f. Aðalsteinn 841 sonur Úranusar 10081 og dóttursonur Vindils 05028) í Flatey á Mýrum við Hornafjörð en 12 mánaða nyt hennar við lok júní var 15.649 kg. Þriðja að þessu sinni er Kaka 982 (f. Jósep 862, sonur Grana 15030 og dóttursonur Afla 11010) í Gunnbjarnarholti 2, líkt og Sumarlín, en 12 mánaða nyt Köku við lok júlí reiknaðist 15.540 kg.
Nú að loknum júlí hafa 48 kýr náð skráðri 13.000 kg. nyt og þar yfir á 12 mánaða tímabili. Af þeim hafa 15 náð 14.000 kg. 12 mánaða nyt og þar yfir og af þeim hafa sex mjólkað yfir 15 þúsund kg. á sambærilegum tíma. Ein þeirra, Sumarlín, sbr. hér fyrr, hefur náð ársnyt fast að 16 þúsundum.
Meðalfjöldi kúa á þeim 114 hreinu kjötframleiðslubúum sem kjötuppgjörið nær yfir var 32,6 nú við lok júlí en árskýrnar á þeim búum voru að meðaltali 26,4 á uppgjörstímabilinu. Meðalkjötframleiðsla á þessum búum var 7.243,7 kg. á umræddum 12 mánuðum.
Meðalfallþungi 9.235 ungnauta á aldrinum 12-30 mánaða, sem slátrað var frá öllum þeim búum sem skýrslur höfðu borist frá, hvort sem um var að ræða bú þar sem stunduð var kjötframleiðsla eða mjólkurframleiðsla, eða blanda af hvoru tveggja, undanfarna 12 mánuði, var 265,7 kg. og meðalaldur þeirra gripa við slátrun var 738,8 dagar.
Kjötframleiðslubúið þar sem meðalvöxtur sláturgripa á síðustu 12 mánuðum reyndist mestur, var Efstaland í Öxnadal en þar náðu 33 gripir að vaxa að meðaltali 714 g. á 493 dögum. Næst í röðinni var búið á Reykjum í hinum gamla Lýtingsstaðahreppi í Skagafirði þar sem meðalgripurinn óx að meðaltali um 684 g. á 537 dögum. Þriðja á listanum að þessu sinni var búið í Nýjabæ undir Eyjafjöllum þar sem 515 daga gamlir gripir uxu að jafnaði um 663 g. á dag.
Meðalfallþungi sláturgripa reiknaðist að þessu sinni mestur á Breiðabóli á Svalbarðsströnd þar sem 30 gripir vigtuðu að meðaltali 382,0 kg. eftir 816 vaxtardaga. Næstmestur reyndist meðalfallþunginn á Reykjum í hinum gamla Lýtingsstaðahreppi, en þar vógu 23 gripir 380,5 kg. að jafnaði, eftir 537 vaxtardaga. Næst þar á eftir kom búið í Saurbæ, einnig í hinum gamla Lýtingsstaðahreppi þar sem meðalfallþungi 10 gripa var 367,9 kg. eftir 720 vaxtardaga.
Sjá nánar hér.