Brúnó frá Brúnastöðum í Flóa, undan Smala 23024 og Öskju 1257. Mynd frá Nautastöðinni á Hesti.
Niðurstöður skýrslna nautgriparæktarinnar fyrir síðastliðna 12 mánuði, nú þegar maímánuður er horfinn í safn tímans, hafa verið birtar á vef okkar. Niðurstöðurnar byggja á þeim skýrslum sem hafði verið skilað upp úr hádegi þann 11. júní. Hér á eftir er farið yfir nokkur atriði úr niðurstöðunum en meiri upplýsingar má finna í töflunum sem finna má tengil í neðst í fréttinni.
Þegar niðurstöðurnar voru reiknaðar hafði verið skilað mjólkurskýrslum frá 416 búum en uppgjör kjötframleiðslunnar nær til 112 búa þar sem framleitt var nautakjöt en ekki stunduð framleiðsla mjólkur til sölu.
Reiknuð meðalnyt 23.839,1 árskýr á búunum 416 var 6.732 kg. eða 7.018 kg. OLM (af orkuleiðréttri mjólk) á uppgjörstímabilinu, júní 2025 til maí 2026. Meðalfjöldi árskúa á fyrrnefndum 416 búum var að þessu sinni 57,3.
Mest meðalnyt árskúa var að þessu sinni á búi Kotakinnar ehf. í Lundi í Lundarreykjadal þar sem 39,8 árskýr mjólkuðu að jafnaði 8,702 kg. Annað í röðinni nú var Hvanneyrarbúið ehf. á Hvanneyri í Andakíl þar sem 64,1 árskýr mjólkaði að meðaltali 8.700 kg. síðustu 12 mánuði. Þriðja búið að maí liðnum var bú Eyvindar og Aðalbjargar í Stóru-Mörk 1 undir Eyjafjöllum, þar sem 31,4 árskýr skiluðu að meðaltali 8.603 kg. mjólkur síðastliðna 12 mánuði.
Ekki skaðar að minna enn á að við höfum leitast við að halda þeirri viðmiðun að búin sem birtast á listanum hafi verið þátttakendur í afurðaskýrsluhaldi mjólkurframleiðenda í það minnsta nærri því ár.
Hæstu skráðu 12 mánaða nyt það sem af er þessu ári á Sumarlín 2499 (f. Balti 17002) í Gunnbjarnarholti 2 í Skeiða- og Gnúpverjahreppi sem mjólkaði 15.906 kg. á tímabilinu júní 2025 til maí 2026. Önnur á þeim lista er Húma 759 (f. Hrímnir 693, sonur Silfra 631 sem var sonarsonur Kambs 06022 og dóttursonur Silfra 09004. Móðurfaðir Húmu er Gýmir 11007) í Dalbæ 1 í Hrunamannahreppi, upprunnin í Skollagróf, en við lok febrúar síðastliðins hafði hún mjólkað samtals 15.525 kg. á 12 mánuðum. Næst á eftir Húmu kemur Óskadís 950 (f. Jón forseti 807, dóttursonur Kola 06003 og sonarsonur Þyts 09078. Móðurfaðir Óskadísar er hinn sami Þytur 09078.) á Stekkjarflötum í Eyjafirði. Nyt Óskadísar á tímabilinu júní 2025 til maí 2026 var 15.147 kg.
Nú við lok maí hafa 42 kýr náð skráðri 13.000 kg. nyt og þar yfir á 12 mánaða tímabili. Af þeim hafa 13 náð 14.000 kg. 12 mánaða nyt og þar yfir og fjórar þeirra hafa mjólkað yfir 15 þúsund kg. á sambærilegum tíma. Ein þeirra, Sumarlín, sbr. hér fyrr, hefur mjólkað fast að 16. þúsundum.
Meðalfjöldi kúa á þeim 112 hreinu kjötframleiðslubúum sem kjötuppgjörið nær yfir var 31,8 við lok maí en árskýrnar á þeim búum voru að meðaltali 28,2 á uppgjörstímabilinu. Meðalkjötframleiðsla á þessum búum var 7.129,6 kg. á umræddum 12 mánuðum.
Meðalfallþungi 9.196 ungnauta á aldrinum 12-30 mánaða, sem slátrað var frá öllum þeim búum sem skýrslur höfðu borist frá, hvort sem um ræðir bú þar sem stunduð var kjötframleiðsla eða mjólkurframleiðsla, eða blanda af hvoru tveggja, undanfarna 12 mánuði, var 264,4 kg. og meðalaldur þeirra gripa við slátrun var 738,1 dagur.
Kjötframleiðslubúið þar sem meðalvöxtur sláturgripa á síðustu 12 mánuðum reiknaðist mestur, var Efstaland í Öxnadal en þar náðu 36 gripir að vaxa að meðaltali 714 g. á 486 dögum. Næst í röðinni var búið á Reykjum í hinum gamla Lýtingsstaðahreppi í Skagafirði þar sem meðalgripurinn óx að meðaltali um 684 g. á 537 dögum. Þriðja á listanum að þessu sinni var búið í Nýjabæ undir Eyjafjöllum þar sem 515 daga gamlir gripir uxu að jafnaði um 663 g. á dag.
Meðalfallþungi sláturgripa reiknaðist mestur á Breiðabóli á Svalbarðsströnd þar sem 29 gripir vigtuðu að meðaltali 395,8 kg. eftir 815 vaxtardaga. Næstmestur reyndist meðalfallþunginn í Saurbæ í hinum gamla Lýtingsstaðahreppi, en þar vógu 13 gripir 387,3 kg. að jafnaði, eftir 700 vaxtardaga. Næst þar á eftir kom búið á Reykjum, einnig í hinum gamla Lýtingsstaðahreppi, en þar var meðalfallþungi 23 gripa 380,5 kg. eftir 537 vaxtardaga.
Sjá nánar hér.