Niðurstöður úr skýrslum nautgriparæktarinnar eftir nýliðinn apríl

Kálfurinn Flagari frá Egilssataðakoti í Flóa. Móðir er Mær 1250 og faðir Stimpill 23020. Mynd frá Na…
Kálfurinn Flagari frá Egilssataðakoti í Flóa. Móðir er Mær 1250 og faðir Stimpill 23020. Mynd frá Nautastöðinni á Hesti.

Niðurstöður skýrslna nautgriparæktarinnar fyrir síðastliðna 12 mánuði, nú að nýliðnum apríl, hafa verið birtar á vef okkar. Niðurstöðurnar byggja á þeim skýrslum sem hafði verið skilað um hádegisbilið þann 11. maí. Hér á eftir er farið yfir nokkur atriði úr niðurstöðunum en meiri upplýsingar má finna í töflunum sem finna má tengil í neðst í fréttinni.

Þegar niðurstöðurnar voru reiknaðar hafði verið skilað mjólkurskýrslum frá 410 búum en uppgjör kjötframleiðslunnar nær nú til 111 búa þar sem framleitt var nautakjöt en ekki stunduð framleiðsla mjólkur til sölu.

Reiknuð meðalnyt 23.627,6 árskúa á búunum 410 var 6.729 kg. eða 7.007 kg. OLM (af orkuleiðréttri mjólk) á uppgjörstímabilinu, maí 2025 til apríl 2026. Meðalfjöldi árskúa á fyrrnefndum 410 búum reyndist nú 57,6.

Mest reyndist meðalnyt árskúa að þessu sinni á búi Kotakinnar ehf. Í Lundi í Lundarreykjadal þar sem 38.7 árskýr mjólkuðu að jafnaði 8,675 kg. Annað í röðinni var bú Eyvindar og Aðalbjargar í Stóru-Mörk 1 undir Eyjafjöllum, þar sem 31,6 árskýr skiluðu að meðaltali 8.647 kg. mjólkur síðastliðna 12 mánuði. Næst á eftir var síðan Hvanneyrarbúið ehf. á Hvanneyri í Andakíl en 64,3 árskýr mjólkuðu þar að meðaltali 8.593 kg. síðustu 12 mánuði.

Ekki skaðar að minna enn á að við höfum leitast við að halda þeirri viðmiðun að búin sem birtast á listanum hafi verið þátttakendur í afurðaskýrsluhaldi mjólkurframleiðenda í það minnsta nærri því ár.

Hæstu skráðu 12 mánaða nyt það sem af er þessu ári á Sumarlín 2499 (f. Balti 17002) í Gunnbjarnarholti 2 í Skeiða- og Gnúpverjahreppi sem mjólkaði 15.601 kg. á tímabilinu maí 2025 til apríl 2026. Önnur á þeim lista er Húma 759 (f. Hrímnir 693, sonur Silfra 631 sem var sonarsonur Kambs 06022 og dóttursonur Silfra 09004. Móðurfaðir Húmu er Gýmir 11007) í Dalbæ 1 í Hrunamannahreppi, upprunnin í Skollagróf, en nú við lok febrúar síðastliðins hafði hún mjólkað samtals 15.525 kg. á 12 mánuðum. Næst á eftir henni kom Óskadís 950 (f. Jón forseti 807, dóttursonur Kola 06003 og sonarsonur Þyts 09078. Móðurfaðir Óskadísar er hinn sami Þytur 09078.).

Nú við lok febrúar hafa 37 kýr náð skráðri 13.000 kg. nyt og þar yfir á 12 mánaða tímabili. Af þeim hafa 11 náð 12 mánaða nyt yfir 14.000 kg. og tvær þeirra hafa mjólkað talsvert á 16. þúsund.

Meðalfjöldi kúa á þeim 111 hreinu kjötframleiðslubúum sem kjötuppgjörið nær yfir var 30,7 við lok febrúar en árskýrnar á þeim búum voru að meðaltali 28,5 á uppgjörstímabilinu. Meðalkjötframleiðsla á þessum búum var 7.328,9 kg. á umræddum 12 mánuðum.

Meðalfallþungi 9.234 ungnauta á aldrinum 12-30 mánaða, sem slátrað var frá öllum þeim búum sem skýrslur höfðu borist frá, hvort sem um ræðir bú þar sem stunduð var kjötframleiðsla eða mjólkurframleiðsla, eða blanda af hvoru tveggja, undanfarna 12 mánuði, var 263,8 kg. og meðalaldur þeirra gripa við slátrun var 737,4 dagar.

Kjötframleiðslubúið þar sem meðalvöxtur sláturgripa á síðustu 12 mánuðum reiknaðist mestur, var Efstaland í Öxnadal en þar náðu 36 gripir að vaxa að meðaltali 714 g. á 486 dögum. Næst í röðinni var búið á Reykjum í hinum gamla Lýtingsstaðahreppi í Skagafirði þar sem meðalgripurinn óx að meðaltali um 684 g. á 537 dögum. Þriðja á listanum að þessu sinni var búið í Nýjabæ undir Eyjafjöllum þar sem 515 daga gamlir gripir uxu að jafnaði um 663 g. á dag.

Meðalfallþungi sláturgripa reiknaðist mestur á Breiðabóli á Svalbarðsströnd þar sem 30 gripir vigtuðu að meðaltali 389,5 kg. eftir 814 vaxtardaga. Næstmestur reyndist meðalfallþunginn í Saurbæ í hinum gamla Lýtingsstaðahreppi, en þar vógu 13 gripir 387,3 kg. að jafnaði, eftir 700 vaxtardaga. Næst þar á eftir kom búið á Reykjum, einnig í hinum gamla Lýtingsstaðahreppi, en þar var meðalfallþungi 23 gripa 380,5 kg. eftir 537 vaxtardaga.

Sjá nánar hér.