Niðurstöður úr skýrslum nautgriparæktarinnar eftir nýliðinn febrúar

Draupnir frá Fagurhlíð í Landbroti, undan Marmara 20011 og Dimmalimm 625 og Stjóri frá Dæli í Fnjósk…
Draupnir frá Fagurhlíð í Landbroti, undan Marmara 20011 og Dimmalimm 625 og Stjóri frá Dæli í Fnjóskadal, undan Kvóta 19041 og kú nr. 1009. - Mynd frá Nautastöðinni á Hesti.

Niðurstöður skýrsluhalds nautgriparæktarinnar á síðustu 12 mánuðum, nú eftir lok febrúar, hafa verið birtar á vef okkar. Niðurstöðurnar byggja á þeim skýrslum sem hafði verið skilað fram undir hádegi þann 11. mars.
Þegar niðurstöðurnar voru reiknaðar hafði verið skilað mjólkurskýrslum frá 437 búum en uppgjör kjötframleiðslunnar náði til 120 búa þar sem framleitt var nautakjöt en ekki stunduð framleiðsla mjólkur til sölu. Reiknuð meðalnyt 23.732,6 árskúa á búunum 437 reiknaðist 6.480 kg. eða 6.395 kg. OLM (af orkuleiðréttri mjólk) á því 12 mánaða tímabili sem uppgjörið spannar. Meðalfjöldi árskúa á fyrrgreindum búum var 54,3.

Mest meðalnyt árskúa á síðustu 12 mánuðum var á búi Eyvindar og Aðalbjargar í Stóru-Mörk 1 undir Eyjafjöllum, 8.793 kg. Næst í röðinni var bú Garðars Guðmundssonar í Hólmi í Landeyjum þar sem hver árskýr skilaði að jafnaði 8.623 kg. á uppgjörstímabilinu. Þriðja að þessu sinni var bú Guðrúnar og Gunnars á Búrfelli í Svarfaðardal þar sem meðalnyt árskúnna reyndist 8.486 kg. síðustu 12 mánuðina. Fjórða á listanum að þessu sinni var bú Björgvins Rúnars Gunnarssonar á Núpi á Berufjarðarströnd þar sem meðalnyt árskúnna var 8.383 kg. Fimmta sætið vermdi bú Laufeyjar og Þrastar á Stakkhamri 2 á Snæfellsnesi, þar sem meðalnytin var 8.342 kg. eftir árskú á fyrrnefndu tímabili.

Nythæsta kýrin á síðustu 12 mánuðum var Amanda 865 (f. Flekkur 08029) á Höskuldsstöðum í Skagabyggð en nyt hennar reyndist vera 14.202 kg. á síðustu 12 mánuðum. Önnur í röðinni var Skritla 963 (f. Sólon 10069) í Nesi í Höfðahverfi en hún mjólkaði 13.720 kg. á tímabilinu. Þriðja varð kýr nr. 988 (f. Strákur 10011) á Núpi á Berufjarðarströnd, sem mjólkaði 13.704 kg. á undanförnum 12 mánuðum. Fjórða kýrin í röðinni að þessu sinn var Mollý 916 (f. 832, sonur Jörfa 13011 og dóttursonur Kola 06003) á Helluvaði 3 á Rangárvöllum en nyt hennar á umræddu tímabili var 13.337 kg. Fimmta var kýrin Flotta 1395 (f. Nagli 1115, sonur Mörsugs 10097 og dóttursonur Stígs 97010) en hún mjólkaði 13.321 kg. á tímabilinu.

Alls náðu 165 kýr á mjólkurframleiðslubúunum sem afurðaskýrslum fyrir febrúar hafði verið skilað frá skömmu fyrir hádegi þann 11. mars að mjólka 11.000 kg. eða meira síðustu 12 mánuði. Af þeim hópi mjólkuðu 43 kýr yfir 12.000 kg. og af þeim skiluðu sex yfir 13.000 kg. nyt á umræddum tíma.

Meðalfjöldi kúa á þeim 120 hreinu kjötframleiðslubúum sem uppgjörið nær yfir reiknaðist 27,1 nú við lok febrúar en árskýrnar á þeim búum voru að meðaltali 25,9. Meðalkjötframleiðsla á þessum búum reyndist 6.873,5 kg. á undanförnum 12 mánuðum.

Meðalfallþungi 9.478 ungnauta á aldrinum 12-30 mánaða, sem slátrað var frá öllum búunum sem uppgjörið nær yfir, hvort sem um ræðir bú þar sem stunduð var kjötframleiðsla eða mjólkurframleiðsla, eða blanda af hvoru tveggja, undanfarna 12 mánuði, var 256,8 kg. og reiknaður meðalaldur þeirra gripa við slátrun var 743,8 dagar.

Athugið að skjalið sem geymir upplýsingar um fjölda dætra undan þeim nautum sem eiga fimm eða fleiri dætur á lista kúa sem skiluðu meiri en 9000 kg. nyt, er ekki uppfært í hverjum mánuði eins og bent hefur verið á áður.

Sjá nánar:

rml.is/is/forrit-og-skyrsluhald/nautgriparaekt/huppais-nidurstodur-2023