Glaumur frá Glaumbæ 2 í Skagafirði, undan Sokk 23023 og Örnu Ýr 958. Mynd frá Nautastöðinni á Hesti.
Niðurstöður skýrslna nautgriparæktarinnar fyrir síðastliðna 12 mánuði, nú þegar júnímánuður hefur runnið sitt skeið á enda, hafa verið birtar á vef okkar. Niðurstöðurnar byggja á þeim skýrslum sem hafði verið skilað upp úr nóni þann 14. júlí. Hér á eftir er farið yfir nokkur atriði úr niðurstöðunum en meiri upplýsingar má finna í töflunum sem finna má tengil í neðst í fréttinni.
Þegar niðurstöðurnar voru reiknaðar hafði verið skilað mjólkurskýrslum frá 421 búi en uppgjör kjötframleiðslunnar nær til 114 búa þar sem framleitt var nautakjöt en ekki stunduð framleiðsla mjólkur til sölu.
Reiknuð meðalnyt 24.176,8 árskúa á búunum 421 var 6.743 kg. eða 7.020 kg. OLM (af orkuleiðréttri mjólk) á uppgjörstímabilinu, júlí 2025 til júní 2026. Meðalfjöldi árskúa á fyrrnefndum 421 búi reiknaðist 57,4.
Mest meðalnyt árskúa var að þessu sinni á búi Kotakinnar ehf. í Lundi í Lundarreykjadal þar sem 41 árskýr mjólkaði að jafnaði 8,787 kg. Annað í röðinni reyndist vera Hvanneyrarbúið ehf. á Hvanneyri í Andakíl þar sem 64,1 árskýr mjólkaði að meðaltali 8.757 kg. á uppgjörstímabilinu. Þriðja búið nú að loknum júní var bú Eyvindar og Aðalbjargar í Stóru-Mörk 1 undir Eyjafjöllum, þar sem 31,3 árskýr skiluðu að jafnaði 8.585 kg. mjólkur síðastliðna 12 mánuði.
Ekki skaðar að minna enn á að við höfum leitast við að halda þeirri viðmiðun að búin sem birtast á listanum hafi verið þátttakendur í afurðaskýrsluhaldi mjólkurframleiðenda í það minnsta upp undir eitt ár.
Hæstu skráðu 12 mánaða nyt það sem af er þessu ári á Sumarlín 2499 (f. Balti 17002) í Gunnbjarnarholti 2 í Skeiða- og Gnúpverjahreppi sem mjólkaði 15.906 kg. á tímabilinu júní 2025 til maí 2026. Önnur á þeim lista er nú Fylling 3372 (f. Aðalsteinn 841 sonur Úranusar 10081 og dóttursonur Vindils 05028) í Flatey á Mýrum við Hornafjörð en 12 mánaða nyt hennar við lok júní var 15.649 kg. Þriðja reyndist vera Húma 759 (f. Hrímnir 693, sonur Silfra 631 sem var sonarsonur Kambs 06022 og dóttursonur Silfra 09004. Móðurfaðir Húmu er Gýmir 11007) í Dalbæ 1 í Hrunamannahreppi, upprunnin í Skollagróf, en við lok febrúar síðastliðins hafði hún mjólkað samtals 15.525 kg. á 12 mánuðum.
Nú að loknum júní hafa 45 kýr náð skráðri 13.000 kg. nyt og þar yfir á 12 mánaða tímabili. Af þeim hafa 14 náð 14.000 kg. 12 mánaða nyt og þar yfir og af þeim fjórar mjólkað yfir 15 þúsund kg. á sambærilegum tíma. Ein þeirra, Sumarlín, sbr. hér fyrr, hefur mjólkað fast að 16 þúsundum.
Meðalfjöldi kúa á þeim 114 hreinu kjötframleiðslubúum sem kjötuppgjörið nær yfir var 32,1 við lok júní en árskýrnar á þeim búum voru að meðaltali 26,9 á uppgjörstímabilinu. Meðalkjötframleiðsla á þessum búum var 7.446,0 kg. á umræddum 12 mánuðum.
Meðalfallþungi 9.381 ungnauts á aldrinum 12-30 mánaða, sem slátrað var frá öllum þeim búum sem skýrslur höfðu borist frá, hvort sem um ræðir bú þar sem stunduð var kjötframleiðsla eða mjólkurframleiðsla, eða blanda af hvoru tveggja, undanfarna 12 mánuði, var 265,4 kg. og meðalaldur þeirra gripa við slátrun var 737,9 dagar.
Kjötframleiðslubúið þar sem meðalvöxtur sláturgripa á síðustu 12 mánuðum reiknaðist mestur, var Efstaland í Öxnadal en þar náðu 34 gripir að vaxa að meðaltali 716 g. á 490 dögum. Næst í röðinni var búið á Reykjum í hinum gamla Lýtingsstaðahreppi í Skagafirði þar sem meðalgripurinn óx að meðaltali um 684 g. á 537 dögum. Þriðja á listanum að þessu sinni var búið í Nýjabæ undir Eyjafjöllum þar sem 515 daga gamlir gripir uxu að jafnaði um 663 g. á dag.
Meðalfallþungi sláturgripa reiknaðist að þessu sinni mestur á Breiðabóli á Svalbarðsströnd þar sem 30 gripir vigtuðu að meðaltali 382,0 kg. eftir 816 vaxtardaga. Næstmestur reyndist meðalfallþunginn á Reykjum í hinum gamla Lýtingsstaðahreppi, en þar vógu 23 gripir 380,5 kg. að jafnaði, eftir 537 vaxtardaga. Næst þar á eftir kom búið á Ytra Hólmi I í Hvalfjarðarsveit en þar var meðalfallþungi 17 gripa 371,8 kg. eftir 725 vaxtardaga.
Sjá nánar hér.