Varði frá Smjördölum í Flóa, sonur Friggjar 1036 og Smala 23024. Mynd frá Nautastöðinni á Hesti.
Nú þegar nóvember er ríflega hálfnaður, hafa niðurstöður skýrslna nautgriparæktarinnar fyrir síðastliðna 12 mánuði birst á vef okkar. Niðurstöðurnar byggja á þeim skýrslum sem hafði verið skilað undir nón þann 17. nóvember. Hér á eftir er farið yfir nokkur atriði úr niðurstöðunum en meiri upplýsingar má finna í töflunum sem tengillinn neðst í fréttinni vísar til.
Þegar niðurstöðurnar voru reiknaðar hafði verið skilað mjólkurskýrslum frá 430 búum en uppgjör kjötframleiðslunnar nær til 114 búa þar sem framleitt var nautakjöt en ekki stunduð framleiðsla mjólkur til sölu.
Reiknuð meðalnyt 24.963,6 árskúa á búunum 430 reyndist vera 6.762 kg. eða 7.035 kg. OLM (af orkuleiðréttri mjólk) á uppgjörstímabilinu, nóvember 2025 til og með október 2026. Meðalfjöldi árskúa á umræddum 430 búum var 58,1.
Mest meðalnyt árskúa var að þessu sinni á búi Hvanneyrarbúsins ehf. á Hvanneyri í Andakíl þar sem meðalnyt 63,4 árskúa reiknaðist 8.869 kg. á uppgjörstímabilinu. Í öðru sæti var bú Brynjólfs, Piu, Péturs og Heinz – Hellisbúsins ehf., í Kolsholti 1, þar sem 44,0 árskýr mjólkuðu 8.854 kg. umrædda 12 mánuði. Þriðja á listanum að þessu sinni var bú Hurðarbaksbúsins ehf. á Hurðarbaki í Flóa, þar sem 62,7 árskýr skiluðu að jafnaði 8.700 kg. mjólkur.
Hæstu skráðu 12 mánaða nyt það sem af er þessu ári, 2026, á Kaka 982 (f. Jósep 862, sonur Grana 15030 og dóttursonur Afla 11010) í Gunnbjarnarholti 2 í Skeiða- og Gnúpverjahreppi, en nyt hennar á 12 mánaða tímabili, við lok september, var 17.869 kg. Önnur á þessum lista að þessu sinni er Óskadís 950 (f. Jón forseti 807, dóttursonur Þyts 09078 og sonarsonur Kola 06003) á Stekkjarflötum í Eyjafjarðarsveit en 12 mánaða afurðir hennar reyndust vera 16.595 kg., einnig á tímabilinu október 2025 til og með september 2026. Þriðja að þessu sinni er Sumarlín 2499 (f. Balti 17002) í Gunnbjarnarholti 2 í Skeiða- og Gnúpverjahreppi, sama búi og Kaka. Sumarlín hafði í lok maí mjólkað 15.906 kg. á 12 mánaða tímabili. Hér eru áfram á ferðinni sömu kýr og sátu efst á þessum lista í uppgjöri ágústmánaðar og einnig við endaðan september.
Við lok október höfðu 63 kýr náð skráðri 13.000 kg. nyt og þar yfir á undanförnum 12 mánuðum. Þar af náðu 19 kýr 14.000 kg. 12 mánaða nyt eða hærri og af þeim hópi mjólkuðu sex yfir 15 þúsund kg. á sambærilegum tíma. Tvær þeirra síðasttöldu hafa náð að mjólka yfir 16.000 kg. á tólf mánaða tímabili og eins og áður hefur komið fram er hæsta 12 mánaða nyt Köku býsna nærri 18.000 kg. og óhætt að nefna aftur að slíkt má virkilega telja til tíðinda hér á þessum vettvangi.
Meðalfjöldi kúa á þeim 114 hreinu kjötframleiðslubúum sem kjötuppgjörið nær yfir var 33,0 nú að loknum október en árskýrnar á þeim búum voru að meðaltali 26,5 á uppgjörstímabilinu. Meðalkjötframleiðsla á þessum búum var 7.264,2 kg. á síðustu 12 mánuðum.
Meðalfallþungi 9.131 ungnauts á aldrinum 12-30 mánaða, sem slátrað var frá öllum þeim búum sem skýrslur höfðu borist frá, hvort sem um var að ræða bú þar sem stunduð var kjötframleiðsla eða mjólkurframleiðsla, eða blanda af hvoru tveggja, undanfarna 12 mánuði, var 268,6 kg. og meðalaldur þeirra gripa við slátrun var 737,5 dagar.
Kjötframleiðslubúið þar sem meðalvöxtur sláturgripa á síðustu 12 mánuðum reyndist mestur, var Efstaland í Öxnadal en þar uxu 57 gripir að meðaltali 743 g. á 482 dögum. Næst í röðinni kom búið á Reykjum í hinum gamla Lýtingsstaðahreppi í Skagafirði þar sem meðalgripurinn óx að jafnaði um 670 g. á 552 dögum. Þriðja á listanum var búið í Nýjabæ undir Eyjafjöllum þar sem meðalvöxtur 532 daga gamalla gripa var að jafnaði 645 g. á dag. Framangreind bú eru ekki neinir nýgræðingar á listanum og hafa setið hér í sömu röð a.m.k. síðustu tvo mánuði.
Meðalfallþungi sláturgripa yfir 12 mánaða tímabil var að þessu sinni mestur á Hóli í Kelduhverfi, sem tilheyrir Norðurþingi, þar sem 10 gripir vógu að jafnaði 401,6 kg. eftir 748 vaxtardaga. Næstmestur var meðalfallþunginn á Eyrarlandi í Fljótsdal eystra, þar sem 10 gripir vógu að jafnaði 391,6 kg. eftir 866 vaxtardaga. Þriðji mesti fallþunginn síðustu 12 mánuðina var á Reykjum í hinum gamla Lýtingsstaðahreppi, en þar vigtuðu 19 gripir 383,9 kg. að jafnaði, eftir 552 vaxtardaga.
Sjá nánar hér.