Niðurstöður úr skýrslum nautgriparæktarinnar í ágúst

Bangsi frá Kambsstöðum í Ljósavatnsskarði. Faðir Hálfmáni 13022, móðir Rönd 268.
Bangsi frá Kambsstöðum í Ljósavatnsskarði. Faðir Hálfmáni 13022, móðir Rönd 268.

Niðurstöður skýrsluhalds nautgriparæktarinnar nú í ágúst hafa verið birtar á vef okkar. Rétt er að geta þess að niðurstöðurnar í skýrsluhaldi mjólkurframleiðenda byggjast á skilum mjólkurskýrslna og annarra skráninga eins og staðan á þeim var að morgni þ. 11. september 2019.

Þegar niðurstöðurnar voru reiknaðar höfðu borist mjólkurskýrslur frá 532 búum en uppgjör kjötframleiðslunnar náði til 106 búa þar sem var framleitt nautakjöt en ekki stunduð framleiðsla mjólkur til sölu. Reiknuð meðalnyt 25.108,3 árskúa á fyrrnefndum 532 búum var 6.259 kg eða 6.510 kg OLM (orkuleiðrétt mjólk) á síðustu 12 mánuðum. Meðalfjöldi árskúa á búunum 532 var 46,8.

Meðalnyt árskúa síðustu 12 mánuði var mest á búi Karls Inga og Erlu Hrannar á Hóli í Svarfaðardal, hinu sama búi og undanfarið, þar sem hver árskýr skilaði nú að meðaltali 8.427 kg af mjólk. Í öðru sæti nú var bú Eggerts, Jónu, Páls og Kristínar á Kirkjulæk í Fljótshlíð þar sem meðalárskýrin mjólkaði 8.259 kg. Þriðja í röðinni að þessu sinni var bú Búkosta ehf. í Reykjahlíð á Skeiðum en þar var meðalnyt árskúa 8.230 kg. Í fjórða sætið var bú Stóru-Tjarna ehf. á Stóru-Tjörnum í Þingeyjarsveit þar sem nyt árskúnna reiknaðist að jafnaði 8.211 kg. Hið fimmta í röðinni að þessu sinni var bú Ólafar og Valgeirs í Hvammi á Barðaströnd þar sem meðalnyt árskúnna var 8.194 kg.

Nythæsta kýrin sl. 12 mánuði var Skuld 1539 (f. Aðall 02039) á Hvanneyri í Andakíl, móðir Bagga 14043 og Jötuns 17026, sem mjólkaði 14.314 kg. Næst henni kom Gola 694 (f. Þytur 09078) í Egilsstaðakoti í Flóa en nyt hennar var 14.276 kg. á tímabilinu sem um ræðir. Þriðja á listanum var Dúna 464 (f. Muni 10018) í Ásgarði í Reykholtsdal sem mjólkaði 13.774 kg. Fjórða var Snúra 546 í Dalbæ 1 í Hrunamannahreppi og reyndist nyt hennar síðustu 12 mánuði vera 13.626 kg. Fimmta kýrin á þessum lista nú við lok ágústmánaðar var Daufá 1866 (f. Gustur 09003) á Hrafnagili í Eyjafjarðarsveit sem mjólkaði 13.208 kg. Alls náðu 110 kýr á búunum, sem afurðaskýrslum fyrir ágústmánuð hafði verið skilað frá að morgni þ. 11. september að mjólka 11.000 kg. og þar yfir á síðustu 12 mánuðum. Af þeim skiluðu 29 yfir 12.000 kg. nyt á tímabilinu og fimm þeirra kúa mjólkuðu meira en 13.000 kg. Enn fremur má geta þess sem þegar hefur komið fram að af þeim fimm kúm sem skiluðu meiru en 13.000 kg. voru tvær sem komust yfir 14.000 kg.

Meðalfjöldi kúa á kjötframleiðslubúunum reiknaðist 22,8 en árskýrnar reiknuðust að jafnaði 17,0. Meðalkjötframleiðsla á þeim búum sl. 12 mánuði reyndist 5.036,0 kg. Meðalfallþungi allra ungnauta á aldrinum 12-30 mánaða, skráðra í slátrun frá öllum búum undanfarna 12 mánuði var 243,0 kg. og reiknaður meðalaldur þeirra við slátrun var 741,2 dagar.

 

Sjá nánar:

Niðurstöður skýrsluhalds nautgriparæktarinnar

/sk