Niðurstöður úr skýrslum nautgriparæktarinnar í apríl

Halli frá Halllandi á Svalbarðsströnd, undan Sjarma 12090 og Þoku 1050.
Halli frá Halllandi á Svalbarðsströnd, undan Sjarma 12090 og Þoku 1050.

Niðurstöður skýrsluhalds nautgriparæktarinnar í nýliðnum apríl eru nú sýnilegar á vef okkar. Rétt er að geta þess að niðurstöðurnar í skýrsluhaldi mjólkurframleiðenda byggjast á skilum mjólkurskýrslna og annarra skráninga eins og staðan á þeim var skömmu fyrir hádegi þ. 11. maí 2020. Hér er enn fremur rétt að benda á það að þó hérlendis virðist hafa gengið vel að sinni að draga úr útbreiðslu kórónaveirunnar sem dreifst hefur víða um lönd, þá geta bein eða óbein áhrif hennar komið fram fyrr eða síðar á hinum ýmsu sviðum. Ekki er þau þó endilega að sjá í afurðatölum í nautgriparæktinni núna, sem vonandi veit á gott. Við óskum nautgripabændum sem öðrum áfram velfarnaðar í lífi og starfi því sem framundan er.

Þegar niðurstöðurnar sem nú hafa verið birtar voru reiknaðar höfðu borist mjólkurskýrslur frá 500 búum en uppgjör kjötframleiðslunnar náði til 108 búa þar sem var framleitt nautakjöt en ekki stunduð framleiðsla mjólkur til sölu. Reiknuð meðalnyt 24.230,8 árskúa á þessum 500 búum var 6.500 kg eða 6.777 kg OLM (af orkuleiðréttri mjólk) á síðustu 12 mánuðum. Meðalfjöldi árskúa á búunum 500 var 48,5.

Meðalnyt árskúa síðustu 12 mánuði var mest á Hurðarbaksbúinu ehf. á Hurðarbaki í Flóa, þar sem meðalárskýrin mjólkaði 9.109 kg. Annað í röðinni var bú Guðlaugar og Eybergs á Hraunhálsi í Helgafellssveit þar sem sambærileg tala var 8.630 kg. eftir árskú. Þriðja búið í röðinni nú við lok apríl var bú Friðriks Þórarinssonar á Grund í Svarfaðardal þar sem meðalnyt árskúa reiknaðist 8.479 kg. Fjórða reiknaðist vera bú Stefáns og Steinunnar á Syðri-Grund í Grýtubakkahreppi þar sem hver árskýr taldist hafa skilað 8.427 kg. á síðustu 12 mánuðum. Fimmta að þessu sinni var bú Ólafar og Valgeirs í Hvammi á Barðaströnd þar sem meðalárskýrin skilaði 8.413 kg. mjólkur. Meðalnytin eftir árskú á Hvanneyrarbúinu var síðan 8.386 kg. og var það því hið sjötta í röðinni. Sjöunda var bú Eggerts, Jónu, Páls og Kristínar á Kirkjulæk 2 í Fljótshlíð þar sem meðalárskýrin skilaði 8.247 kg. síðustu 12 mánuði.

Nythæsta kýrin sl. 12 mánuði var Trappa 1832 í Flatey á Mýrum við Hornafjörð sem mjólkaði 14.138 kg. Önnur í röðinni var Pottlaug 578 (f. 485 undan Skurði 02012 og mf. Ófeigur 02016) á Hrafnkelsstöðum 3 í Hrunamannahreppi sem mjólkaði 13.595 kg. á tímabilinu. Þriðja á listanum að þessu sinni var Aría 895 (f. 767 afkomandi Teins 97001, Ófeigs 02016 og Lóa 01008) í Flatey á Mýrum við Hornafjörð sem mjólkaði 13.356 kg. Fjórða var kýr nr. 857 (f. Sandur 07014) í Stóru-Hildisey 1 í Austur-Landeyjum en nyt hennar reyndist vera 13.266 kg. á síðustu 12 mánuðum. Fimmta á listanum að þessu sinni var kýrin Píla 1288 (f. Afli 11010) í Garði í Eyjafjarðarsveit, sem skilaði undanfarna 12 mánuði 13.185 kg. mjólkur.

Alls náðu 114 kýr á búunum 500, sem afurðaskýrslum fyrir apríl hafði verið skilað frá undir hádegi þ. 11. maí að mjólka 11.000 kg. og þar yfir á síðustu 12 mánuðum. Af þeim skiluðu 22 nyt yfir 12.000 kg. á tímabilinu og af þeim mjólkuðu 10 meira en 13.000 kg. Enn fremur skal þess getið að kýrin sem mest mjólkaði, komst vel yfir 14.000 kg., sbr. upptalninguna yfir efstu kýrnar.

Meðalfjöldi kúa á kjötframleiðslubúunum reiknaðist 22,7 en árskýrnar reiknuðust að jafnaði 19,9. Meðalkjötframleiðsla á þeim búum sl. 12 mánuði reyndist 5.345,9 kg.

Meðalfallþungi 9.470 ungnauta á aldrinum 12-30 mánaða, skráðra í slátrun frá öllum búum, undanfarna 12 mánuði var 244,4 kg. og reiknaður meðalaldur þeirra við slátrun var 745,6 dagar.

 

Sjá nánar:

Niðurstöður skýrsluhalds nautgriparæktarinnar

/sk