Niðurstöður úr skýrslum nautgriparæktarinnar í júlí

Winston frá Svertingsstöðum 2 í Eyjafjarðarsveit, undan Jörfa 13011 og Þulu 766
Winston frá Svertingsstöðum 2 í Eyjafjarðarsveit, undan Jörfa 13011 og Þulu 766

Niðurstöður skýrsluhalds nautgriparæktarinnar nú við lok júlímánaðar, hafa verið birtar á vef okkar. Rétt er að geta þess að niðurstöðurnar í skýrsluhaldi mjólkurframleiðenda byggjast á skilum mjólkurskýrslna og annarra skráninga eins og staðan á þeim var skömmu fyrir hádegi þ. 11. ágúst 2020.

Þegar niðurstöðurnar sem nú hafa verið birtar voru reiknaðar höfðu borist mjólkurskýrslur frá 509 búum en uppgjör kjötframleiðslunnar náði til 108 búa þar sem var framleitt nautakjöt en ekki stunduð framleiðsla mjólkur til sölu. Reiknuð meðalnyt 24.586,0 árskúa á fyrrnefndum 509 búum var 6.494 kg eða 6.781 kg OLM (af orkuleiðréttri mjólk) síðustu 12 mánuðina. Meðalfjöldi árskúa á búunum 509 var 48,3.

Meðalnyt árskúa síðustu 12 mánuði var mest á Hurðarbaksbúinu ehf. á Hurðarbaki í Flóa, þar sem meðalárskýrin mjólkaði 8.815 kg. Annað í röðinni var bú Guðlaugar og Eybergs á Hraunhálsi í Helgafellssveit þar sem meðalnyt árskúa var 8.746 kg. Þriðja búið í röðinni nú í lok júlí var bú Friðriks Þórarinssonar á Grund í Svarfaðardal þar sem meðalnyt árskúnna reiknaðist 8.555 kg. Fjórða búið að þessu sinni var bú Eggerts, Jónu, Páls og Kristínar á Kirkjulæk 2 í Fljótshlíð en meðalnyt árskúa þar reiknaðist 8.362 kg. á tímabilinu. Hvanneyrarbúið var síðan í fimmta sæti með meðalnyt upp á 8.305 kg. eftir árskú. Þessi fimm efstu bú eru þau sömu og í sömu röð og fyrir mánuði síðan.

Nythæsta kýrin sl. 12 mánuði var Staka 1321 (f. Sandur 07014) í Skáldabúðum í Skeiða- og Gnúpverjahreppi en nyt hennar var 14.833 kg. á tímabilinu. Önnur í röðinni nú var Ása 501 (f. Pipar 12007) á Litlu-Reykjum í Flóa sem mjólkaði 14.512 kg. Þriðja kýrin reyndist vera Gamla 759 (f. Stöðull 05001) á Hurðarbaki í Flóa en nyt hennar var 13.660 kg. á umræddu tímabili. Fjórða á listanum var Trappa 1832 í Flatey á Mýrum við Hornafjörð sem mjólkaði 13.650 kg. en hún hefur ekki skráðan föður í skýrsluhaldskerfinu. Fimmta var Fimma 1245 (f. Hrókur 708, undan Þrym 02042) í Skáldabúðum í hinum forna Gnúpverjahreppi en hún skilaði 13.231 kg. á þessum 12 mánuðum sem uppgjörið nær til.

Alls náðu 138 kýr á búunum 509, sem afurðaskýrslum fyrir júlí hafði verið skilað frá nú skömmu fyrir hádegi þ. 11. ágúst að mjólka 11.000 kg. og þar yfir á síðustu 12 mánuðum. Af þeim skiluðu 30 nyt yfir 12.000 kg. á tímabilinu og þar af náðu níu kýr að mjólka meira en 13.000 kg. Enn fremur skal þess getið að tvær þeirra mjólkuðu talsvert meira en 14.000 kg. umrætt tímabil.

Meðalfjöldi kúa á kjötframleiðslubúunum reiknaðist 25,9 en árskýrnar reiknuðust að jafnaði 20,3. Meðalkjötframleiðsla á þeim búum sl. 12 mánuði reyndist 5.288,8 kg.

Meðalfallþungi 9.277 ungnauta á aldrinum 12-30 mánaða, skráðra í slátrun frá öllum búum, undanfarna 12 mánuði var 246,4 kg. og reiknaður meðalaldur þeirra við slátrun var 745,4 dagar.

 

Sjá nánar:

Niðurstöður skýrsluhalds nautgriparæktarinnar

/sk