Niðurstöður úr skýrslum nautgriparæktarinnar í mars 2017

Herkir frá Espihóli í Eyjafjarðarsveit
Herkir frá Espihóli í Eyjafjarðarsveit

Niðurstöður afurðaskýrsluhaldsins í nautgriparæktinni í marsmánuði sem nú er nýliðinn, hafa nú verið birtar á vef okkar. Þegar þær niðurstöður urðu til fljótlega eftir hádegið þann 11. apríl, höfðu skýrslur borist frá 570 búum. Reiknuð meðalnyt 24.914,4 árskúa á þessum búum, var 6.037 kg á síðustu 12 mánuðum. Meðalfjöldi árskúa á búunum sem tölum hafði verið skilað frá á fyrrnefndum tíma, var 43,7 á tímabilinu.

Búið þar sem meðalnyt árskúa var mest á síðustu 12 mánuðum var hið sama og við seinustu uppgjör, bú Brúsa ehf. á Brúsastöðum í Vatnsdal, en hver árskýr mjólkaði þar 9.055 kg. á tímabilinu. Næstu bú á eftir núna var bú Guðlaugar og Eybergs á Hraunhálsi í Helgafellssveit þar sem árskýrin skilaði að jafnaði 8.229 kg. á tímabilinu. Bú Þrastar Þorsteinssonar á Moldhaugum við Eyjafjörð var hið þriðja í röðinni nú við nýliðin mánaðamót en þar mjólkaði meðalárskýrin 8.189 kg. á síðustu 12 mánuðum. Fjórða í röðinni nú var Félagsbúið á Espihóli í Eyjafjarðarsveit þar sem hver árskýr skilaði að meðaltali 8.169 kg á tímabilinu. Fimmta á listanum núna var bú Pálma Ragnarssonar í Garðakoti í Hjaltadal en meðalárskýrin þar mjólkaði 8.063 kg. síðustu 12 mánuðina. Búin sem hér eru talin eiga það sammerkt að skýrslum um nyt þar hefur verið skilað jafnt og þétt undanfarið ár.

Nythæsta kýrin við uppgjörið nú var Pollýanna (f. Hegri 03014) á Brúsastöðum í Vatnsdal en hún mjólkaði 14.181 kg. á tímabilinu. Næst henni var Jata 555 (F. Kraki 09002) á Hóli í Svarfaðardal en nyt hennar reyndist vera 13.053 kg. á síðustu 12 mánuðum. Þriðja var kýr nr. 791 (f. Askur 674 undan Rjóma 07017) á Innri-Kleif í Breiðdal eystra, sem mjólkaði 12.948 kg. síðustu 12 mánuði.

Alls náðu 55 kýr á búunum, sem afurðaskýrslum fyrir mars hafði verið skilað frá skömmu eftir hádegi þ. 11. apríl, að mjólka yfir 11.000 kg á síðustu 12 mánuðum. Af þeim reiknuðust 10 hafa mjólkað yfir 12.000 kg. og tvær af þeim komust yfir 13.000 kg. markið og ennfremur náði önnur þeirra að mjólka yfir 14.000 kg.

Sjá nánar:

Niðurstöður skýrsluhalds nautgriparæktarinnar

/sk