Niðurstöður úr skýrslum nautgriparæktarinnar í nóvember

Svarfi frá Hofsá í Svarfaðardal - faðir Bakkus 12001 frá Auðsholti í Hrunamannahreppi en móðir er Si…
Svarfi frá Hofsá í Svarfaðardal - faðir Bakkus 12001 frá Auðsholti í Hrunamannahreppi en móðir er Silfurkarfa 1102

Niðurstöður skýrsluhalds nautgriparæktarinnar í nýliðnum nóvember hafa verið birtar á vef okkar. Rétt er að geta þess að niðurstöðurnar í skýrsluhaldi mjólkurframleiðenda byggjast á skilum mjólkurskýrslna og annarra skráninga eins og staðan á þeim var að morgni 13. desember 2019. Einnig má nefna að veðrið sem nýlega gekk yfir stóran hluta landsins hefur verið ein ástæða þessarar seinkunar sé miðað við hinn venjulega tíma sem þessar niðurstöður hafa birst á, undanfarið. Ekki kemur í ljós fyrr en frá líður hver áhrif rafmagnsleysið af völdum veðursins mun hafa á nyt kúa en sannarlega gætu þau komið á einhvern hátt fram í niðurstöðum næstu mánaða þó ekki verði um það spáð hér, eingöngu látin í ljósi sú ósk að sem fljótast rætist úr þar sem enn er rafmagnslaust eða truflanir á fjarskiptum og samgöngum. Enn fremur er ástæða til að þakka þeim sem lagt hafa ýmislegt á sig við að gera við rafmagnslínur eða leysa úr öðrum þeim viðfangsefnum sem fylgdu fyrrnefndu veðri.

Þegar niðurstöðurnar voru reiknaðar höfðu borist mjólkurskýrslur frá 519 búum en uppgjör kjötframleiðslunnar náði til 105 búa þar sem var framleitt nautakjöt en ekki stunduð framleiðsla mjólkur til sölu. Reiknuð meðalnyt 24.837,5 árskúa á þessum 519 búum var 6.301 kg eða 6.552 kg OLM (orkuleiðrétt mjólk) á síðustu 12 mánuðum. Meðalfjöldi árskúa á búunum 519 var 47,9.

Meðalnyt árskúa síðustu 12 mánuði var mest hjá Hurðarbaksbúinu ehf. á Hurðarbaki í Flóa, þar sem meðalárskýrin skilaði 8.551 kg. Annað í röðinni var bú Ólafar og Valgeirs í Hvammi á Barðaströnd þar sem meðalnyt árskúnna var 8.367 kg. Hið þriðja í röðinni var bú Karls Inga og Erlu Hrannar á Hóli í Svarfaðardal, þar sem hver árskýr skilaði nú að jafnaði 8.329 kg. Í fjórða sæti var að þessu sinni bú Stóru-Tjarna ehf. á Stóru-Tjörnum í Ljósavatnsskarði í Þingeyjarsveit þar sem nyt árskúnna reiknaðist 8.302 kg.  Fimmta búið á listanum var bú Eggerts, Jónu, Páls og Kristínar á Kirkjulæk í Fljótshlíð þar sem meðalárskýrin mjólkaði 8.278 kg.

Nythæsta kýrin sl. 12 mánuði var Svana 753 (f. Gráni 608, dóttursonur Ófeigs 02016 og sonarsonur Lóa 01008) í Flatey á Mýrum við Hornafjörð en hún mjólkaði 14.605 kg. á tímabilinu. Önnur í röðinni var Rækja (f. Kóngur 11059), einnig í Flatey á Mýrum, en nyt hennar var 14.017 kg. síðustu 12 mánuðina. Þriðja nythæsta kýrin reyndist vera Spurning 1818 (f. Skjár 10090) í Birtingaholti I í Hrunamannahreppi og mjólkaði hún 13.668 kg.

Alls náðu 123 kýr á búunum, sem afurðaskýrslum fyrir nóvembermánuð hafði verið skilað frá að morgni þ. 13. desember að mjólka 11.000 kg. og þar yfir á síðustu 12 mánuðum. Af þeim skiluðu 36 yfir 12.000 kg. nyt á tímabilinu og níu af þeim mjólkuðu meira en 13.000 kg. Enn fremur ná nefna eins og sjá má hér á undan að tvær kýr mjólkuðu yfir 14.000 kg.

Meðalfjöldi kúa á kjötframleiðslubúunum reiknaðist 22,6 en árskýrnar reiknuðust að jafnaði 18,4. Meðalkjötframleiðsla á þeim búum sl. 12 mánuði reyndist 5.180,6 kg. Meðalfallþungi allra ungnauta á aldrinum 12-30 mánaða, skráðra í slátrun frá öllum búum undanfarna 12 mánuði var 243,1 kg. og reiknaður meðalaldur þeirra við slátrun var 743,4 dagar.

Sjá nánar:

Niðurstöður skýrsluhalds nautgriparæktarinnar

/sk