Kormákur frá Hnjúki í Vatnsdal, sonur Jónu 803 og Snáða 23017. Mynd frá Nautastöðinni á Hesti.
Nú þegar september er á enda runninn fyrir nokkru og dagarnir teknir að styttast svo eftir er tekið, hafa niðurstöður skýrslna nautgriparæktarinnar fyrir síðastliðna 12 mánuði verið birtar á vef okkar. Niðurstöðurnar byggja á þeim skýrslum sem hafði verið skilað undir hádegi þann 13. október. Hér á eftir er farið yfir nokkur atriði úr niðurstöðunum en meiri upplýsingar má finna í töflunum sem tengillinn neðst í fréttinni vísar til.
Þegar niðurstöðurnar voru reiknaðar hafði verið skilað mjólkurskýrslum frá 424 búum en uppgjör kjötframleiðslunnar nær til 115 búa þar sem framleitt var nautakjöt en ekki stunduð framleiðsla mjólkur til sölu.
Reiknuð meðalnyt 24.312,9 árskúa á búunum 424 var 6.771 kg. eða 7.046 kg. OLM (af orkuleiðréttri mjólk) á uppgjörstímabilinu, október 2025 til og með september 2026. Meðalfjöldi árskúa á fyrrnefndum 424 búum var 57,3.
Mest meðalnyt árskúa var að þessu sinni á búi Hvanneyrarbúsins ehf. á Hvanneyri í Andakíl þar sem meðalnyt 63,7 árskúa reiknaðist 8.860 kg. á uppgjörstímabilinu. Í öðru sæti hér var bú Brynjólfs, Piu, Péturs og Heinz – Hellisbúsins ehf., í Kolsholti 1, þar sem 43,7 árskýr mjólkuðu 8.732 kg. síðastliðna 12 mánuði. Þriðja á þessum lista að þessu sinni var bú Kotakinnar ehf. í Lundi í Lundarreykjadal þar sem 44,7 árskýr mjólkuðu að jafnaði 8.625 kg.
Hæstu skráðu 12 mánaða nyt það sem af er þessu ári, 2026, á Kaka 982 (f. Jósep 862, sonur Grana 15030 og dóttursonur Afla 11010) í Gunnbjarnarholti 2 í Skeiða- og Gnúpverjahreppi, en nyt hennar á 12 mánaða tímabili, við lok september, var 17.869 kg. sem er nærri 1.000 kg. hærra en nyt hennar á 12 mánuðum reiknaðist fyrir mánuði síðan. Þetta eru talsverð tíðindi og staðfesting þess hverju íslenska kýrin getur afkastað þar sem fóður og umgjörð eru á þann veg sem fyrirfinnst í Gunnbjarnarholti og einnig víðar. Önnur á þessum lista nú var Óskadís 950 (f. Jón forseti 807, dóttursonur Þyts 09078 og sonarsonar Kola 06003) en 12 mánaða afurðir hennar nú við lok september reyndust vera 16.595 kg. Þriðja að þessu sinni var Sumarlín 2499 (f. Balti 17002) í Gunnbjarnarholti 2 í Skeiða- og Gnúpverjahreppi, eins og Kaka. Sumarlín hafði í lok maí mjólkað 15.906 kg. á 12 mánaða tímabili. Hér eru á ferðinni sömu kýr og sátu efst á þessum lista í uppgjöri ágústmánaðar.
Við lok september höfðu 59 kýr náð skráðri 13.000 kg. nyt og þar yfir á undanförnum 12 mánuðum. Af þeim náðu 19 náð 14.000 kg. 12 mánaða nyt og þar yfir og af þeim hópi mjólkuðu sex yfir 15 þúsund kg. á sambærilegum tíma. Tvær hinna síðasttöldu hafa náð að mjólka yfir 16.000 kg. á tólf mánaða tímabili og eins og fram hefur komið er 12 mánaða nyt Köku að nálgast 18.000 kg. eins og áður greinir og má telja til stærri tíðinda á þessum vettvangi.
Meðalfjöldi kúa á þeim 115 hreinu kjötframleiðslubúum sem kjötuppgjörið nær yfir var 32,9 nú að enduðum september en árskýrnar á þeim búum voru að meðaltali 26,1 á uppgjörstímabilinu. Meðalkjötframleiðsla á þessum búum var 7.298,0 kg. á umræddum 12 mánuðum.
Meðalfallþungi 9.260 ungnauta á aldrinum 12-30 mánaða, sem slátrað var frá öllum þeim búum sem skýrslur höfðu borist frá, hvort sem um var að ræða bú þar sem stunduð var kjötframleiðsla eða mjólkurframleiðsla, eða blanda af hvoru tveggja, undanfarna 12 mánuði, var 267,7 kg. og meðalaldur þeirra gripa við slátrun var 737,3 dagar.
Kjötframleiðslubúið þar sem meðalvöxtur sláturgripa á síðustu 12 mánuðum reyndist mestur, var Efstaland í Öxnadal en þar náðu 60 gripir að vaxa að meðaltali 749 g. á 485 dögum. Næst í röðinni var búið á Reykjum í hinum gamla Lýtingsstaðahreppi í Skagafirði þar sem meðalgripurinn óx að meðaltali um 670 g. á 552 dögum. Þriðja á listanum nú var búið í Nýjabæ undir Eyjafjöllum þar sem 528 daga gamlir gripir uxu að jafnaði um 654 g. á dag. Framangreind bú teljast ekki neinir nýgræðingar á þessum lista og sátu hér í sömu röð fyrir mánuði síðan.
Meðalfallþungi sláturgripa reiknaðist að þessu sinni mestur á Hóli í Kelduhverfi, sem tilheyrir Norðurþingi, þar sem 10 gripir vógu að jafnaði 401,6 kg. eftir 748 vaxtardaga. Næstmestur reyndist meðalfallþunginn á Reykjum í hinum gamla Lýtingsstaðahreppi, en þar vigtuðu 19 gripir 383,9 kg. að jafnaði, eftir 552 vaxtardaga. Næst þar á eftir kom búið á Hóli á Tjörnesi þar sem meðalfallþungi 18 gripa var 377,0 kg. eftir 772 vaxtardaga. Einnig hér eru á ferðinni sömu búin og fyrir mánuði síðan.
Sjá nánar hér.