Notendur Fjárvís athugið

Könnun fyrir notendur Fjárvís er nú aðgengileg inn á Fjárvís.is Könnunin er unnin í samvinnu við fagráð í sauðfjárrækt og með henni langar okkur að fá betri yfirsýn yfir notkun bænda á forritinu og hvaða áherslur þeir vilja sjá varðandi áframhaldandi þróun á því.

Könnunin er aðgengileg öllum bændum sem eru með virkan aðgang að Fjárvís. Til að komast í að svara könnuninni þarf einfaldlega að skrá sig inn í Fjárvís og smella á hlekk sem er á forsíðunni. Könnunin er aðeins aðgengileg þeim sem hafa virkan aðgang að Fjárvís. Ef fleiri en einn aðili koma að notkun kerfisins fyrir sama bú þá er ekkert sem hindrar að þeir aðilar taki þátt í könnuninni

Könnunin verður opin til miðnættis 19. febrúar og hvetjum við alla Fjárvísnotendur til að taka þátt og aðstoða okkur við að gera forritið betra.

/okg