Ný naut á aðventunni

Svarmur 25016 frá Búrfelli í Svarfaðardal. Mynd: NBÍ.
Svarmur 25016 frá Búrfelli í Svarfaðardal. Mynd: NBÍ.

Nú þegar aðventan nálgast óðfluga koma ný naut til notkunar og önnur fara úr notkun. Fyrst er rétt að fara yfir stöðu dreifingar á þessum nautum. Nýju nautin eru komin í kúta frjótækna á Vesturlandi, Norðurlandi og Austurlandi. Mivikudaginn 2. desember verða þeir mættir til dreifingar á Suðurlandi og í kjölfarið á Vestfjörðum, A-Skaft. og Skaftárhreppi. Listi nauta í notkun hefur verið uppfærður í FANG-appinu og þar eru einnig þau naut sem eru að fara úr notkun. Listinn verður því lengri en ella í nokkra daga eða meðan að umskiptin ganga yfir.
Nautin sem koma ný í notkun eru: Kakali 25007 frá Þverlæk í Holtum, f. Flammi 22020, m. Fylking 1516 Hálfmánadóttir 13022, Bónus 25008 frá Minni-Ökrum í Blönduhlíð, f. Flammi 22020, m. Arna 659 Jörfadóttir 13011, Erpur 25009 frá Litlu-Ásgeirsá í Víðidal, f. Nafni 19009, m. Erpa 231 Golíatsdóttir 15018, Hjalti 25010 frá Skúfsstöðum í Hjaltadal, f. Krummi 22025, m. Skjalda 312 Tannadóttir 15065, Stúfur 25014 frá Ytri-Tungu 1 á Tjörnesi, f. Garri 23014, m. Huppa 632 Tannadóttir 15065, Gramó 25015 frá Neðri-Torfustöðum í Miðfirði, f. Garri 23014, m. Úllala 950 Bikarsdóttir 16008, Svarmur 25016 frá Búrfelli í Svarfaðardal, f. Gráni 23010, m. Brúða 963 Skellsdóttir 11054 og Rómeó 25018 frá Sólheimum í Sæmundarhlíð, f. Dúskur 23008, m. Veróna 815 Skáldadóttir 19036.

Úr notkun fara Jenni 24019, Nökkvi 24020, Fennill 24023, Kandís 24026, Valur 24027 og Flaumur 24028, ýmist vegna þess að sæði er búið, farið að draga úr notkun eða þeir náðu ekki vinsældum.

Úr þessum 8 nýju nautum stendur til boða X-sæði úr öllum nema Erpi 25009. Áfram er X-sæði í dreifingu úr Kokkáli 25003, Auðólfi 25004, Jósep 25005 og Lexusi 25006.

Listi yfir naut í notkun hefur verið uppfærður á nautaskra.is auk þess sem upplýsingar verða birtar í næsta Bændablaði. Við vonum að allir finni góða valkosti meðal þessara nauta en þau hafa upp á ýmislegt að bjóða. Sérstaklega er hópurinn sterkur í júgur- og spenagerð auk mjalta og skaps.