Ný naut í notkun í byrjun júní

Brími 23025 frá Skeiðháholti 1. Mynd: NBÍ
Brími 23025 frá Skeiðháholti 1. Mynd: NBÍ

Nú er að koma til notkunar sæði úr níu nautum og fór sæði úr þeim frá Nautastöðinni á Hesti í vikunni. Það ætti því að vera að berast í kúta margra frjótækna um þetta leyti. Ekki er gott að tímasetja það nákvæmlega en það fer eftir ferðum og hvenær fyllt er á kúta einstakra frjótækna. Á einhverjum svæðum kunna að líða um tvær vikur þar til sæðið berst.

Þessi naut eru öll fædd síðari hluta ársins 2023, allt miklir efnisgripir sem voru á sínum tíma valdir á grunni góðs erfðamats. Þetta eru Smali 23024 frá Tjörn á Skaga, undan Banana 20017 og Múffu 483 Lúðursdóttur 10067, Brími 23025 frá Skeiðháholti 1 á Skeiðum, undan Banana 20017 og Viktoríu 1391, Truttadóttir 17051, Brúsi 23026 frá Reykjum á Skeiðum, undan Banana 20017 og Ösp 105 Piparsdóttir 12007, Kuldi 23027 frá Berustöðum í Ásahreppi, undan Hákoni 21007 og Frostrós 902 Bambadóttur 08049, Snær 23028 frá Berustöðum í Ásahreppi, undan Óðni 21002 og Snærós 1347 Jörfadóttur 13011, Flóki 23031 frá Dæli í Skíðadal, undan Keili 20031 og Fló 931 Dúettsdóttur 12097, Markaður 23034 frá Búðarhóli í Landeyjum, undan Kvóta 19042 og Huldu 1186 Óberonsdóttur 17046, Farsæll 23035 frá Fellshlíð í Eyjafirði, undan Bússa 19066 og Bröndu 1023 Jörfadóttur 13011 og Hrollur 24005 frá Neðri-Þverá í Fljótshlíð, undan Kalda 21020 og Gleði 1203 Hælsdóttur 14008.

Á sama tíma og þessi naut koma í dreifingu lýkur tilrauninni með kyngreinda sæðið og verða menn upplýstir innan tíðar um hvor tegundin er hvað. Við tekur uppgjör en til þess að ljúka því þurfa að líða 56 dagar frá síðustu sæðingu svo hægt sé að reikna 56 daga ekki uppbeiðsli og bera saman kyngreinda og hefðbundna sæðið. Endanlegt fanghlutfall verður svo ekki ljóst fyrr en fullri meðgöngu verður náð.

Þau naut sem eru í tilrauninni verða áfram í dreifingu og þá með þeim formerkjum að til dreifingar úr þeim verður bæði hefðbundið sæði og það kyngreinda sæði sem eftir er af tilraunasæðinu. Breytingin verður sú að nú mun það verða upplýst hvort er hvað. Þetta eru þeir Snáði 23017, Stimpill 23020, Maddi 23022, Sokkur 23023 og Abraham 23030. Þá verður Seimur 23021 einnig áfram í notkun.

Úr notkun hverfa Reykhóll 23002, Ísjaki 23004, Miði 23006, Dúskur 23008, Siffi 23009, Gráni 23010, Hvinur 23015 og Nenni 23016 en segja má að þeir hafi gegnt sínu hlutverki.

Af þeim nautum sem verða í notkun er til Spermvital-sæði úr Smala 23024, Bríma 23025, Snæ 23028 og Farsæli 23035. Þá er einnig eitthvað til af slíku sæði úr Snáða 23017, Seim 23021, Brúsa 23026, Kulda 23027 og Hrolli 24005 í kútum frjótækna þó birgðir af því á Nautastöðinni séu nánast uppurnar.