Nýjasta nýtt í Jörð

Margar smávægilegar úrbætur hafa verið gerðar undanfarnar vikur sem einkum tengjast því að auka skilvirkni í skráningum og bæta við skráningarmöguleikum. Uppfærslurnar nýtast fyrst og fremst bændum sem eru með almennan aðgang að kerfinu en síður þeim sem eru aðeins með lögbundinn aðgang.

Má þar nefna að hægt er að afrita áburðaráætlanir til að flýta fyrir því að gera nýjar áætlanir með smávægilegum breytingum. Einnig möguleiki á athugasemdum í skráningu á áburðargjöf og búfjáráburðargjöf. Þá er núna hægt að skrá blöndu af tveimur sáðvörublöndum í sömu skráningu.

Sérstök athygli er þó vakin á því að núna er hægt að skrá þegar heimaræktað sáðkorn er notað í kornrækt. Þetta er gert í samvinnu við atvinnuvegaráðuneytið og með það að markmiði að fá yfirlit yfir notkun heimaræktaðs sáðkorns til að geta lagt mat á mikilvægi tiltekins sáðvöruframboðs, eftir misgóð kornræktarár.

Þá er einnig ástæða til að vekja athygli á því að búið er að endurbæta möguleika sem tengjast nýtingu á kortum og loftmyndum. Einkum snýr þetta að því að núna er hægt að skoða áburðaráætlanir á loftmynd þar sem túnin eru skilgreind með mismunandi litum eftir því hvaða áburðartegund áætlað er að nota. Einnig er hægt að sjá upplýsingar um fjölda sekkja á hverja spildu og fleiri praktískar upplýsingar sem nýtast við áburðardreifinguna. Þá er hægt að tengja staðsetningu símans og/eða tölvunnar við kortið og þannig er hægt að sjá á hvaða spildu verið er að vinna á hverju sinni.

Nýjar kortaþekjur eru núna aðgengilegar sem undirlag fyrir túnkortin. Til viðbótar við loftmyndirnar frá Loftmyndum ehf er núna einnig hægt að velja samsetta gervitungla og loftmynd frá Esri og loftmyndir og vistgerðarkort frá Náttúrufræðistofnun.

/okg