Nýr starfsmaður hjá RML

 Ágúst Sigurðsson er kominn til starfa hjá RML. Hann mun starfa sem fagstjóri á búfjárræktar- og þjónustusviði og er í 100% starfi. Starfsstöð hans er á Selfossi.

Ágúst hefur háskólamenntun á sviði búvísinda og er með doktorspróf í búfjárerfðafræði frá SLU í Svíþjóð.
Ágúst hefur víðtæka þekkingu á starfsumhverfi bænda og landbúnaðarins. Meðal starfa hans má nefna að hann var landsráðunautur í búfjárerfðafræði og hrossarækt hjá BÍ á árunum 1996-2004. Hann starfaði sem rektor Landbúnaðarháskóla Íslands 2004-2014 og sveitarstjóri Rangárþings ytra árin 2014-2022
Síminn hjá Ágústi er 516-5060 og netfang agust@rml.is


Við bjóðum Ágúst velkominn til starfa hjá RML.


Á starfsstöðinni á Selfossi starfa ásamt Ágústi:
Brynja Marvinsdóttir á búfjárræktar- og þjónustusviði
Guðmundur Jóhannesson á búfjárræktar- og þjónustusviði
Halla Eygló Sveinsdóttir á búfjárræktar- og þjónustusviði
Helgi Jóhannesson á rekstrar- og umhverfissviði
Hjalti Sigurðsson á búfjárræktar- og þjónustusviði
Jóna Þórunn Ragnarsdóttir á rekstrar- og umhverfissviði
Ólafur Þór Þórarinsson á rekstrar- og umhverfissviði
Runólfur Sigursveinsson á rekstrar- og umhverfissviði
Sigurður Torfi Sigurðsson á rekstrar- og umhverfissviði

 

/hh