Nýr starfsmaður hjá RML

Brynjar Már Björnsson er kominn til starfa hjá RML. Hann mun starfa við hugbúnaðarþróun á Fjármála- og tæknisviði. Aðalstarfsstöð hans er á skrifstofu RML á Höfðabakka 9 í Reykjavík.

Brynjar er með BSc í tölvunarfræði frá HÍ. Helstu verkefni hans verða hugbúnaðarþróun í nýja WorldFeng og öðrum tilfallandi verkefnum tengd forritun og gagnagrunnum.

Netfang Brynjars er brynjar@rml.is

Við bjóðum Brynjar velkominn til starfa hjá RML.

Á starfsstöðinni í Reykjavík starfa ásamt honum:
Heiðrún Sigurðardóttir á búfjárræktar- og þjónustusviði, Hrefna Hreinsdóttir á fjármála- og tæknisviði, Ívar Ragnarsson á rekstrar-og umhverfissviði, Jóhann Már Sigurbjörnsson á fjármála- og tæknisviði, Sigrún Dögg Eddudóttir á rekstrar- og umhverfissviði, Sigurður Kristjánsson á búfjárræktar- og þjónustusviði, Þorvaldur Kristjánsson á búfjárræktar- og þjónustusviði og Þórey Ólöf Gylfadóttir á rekstrar- og umhverfissviði.