Nýtt kynbótamat var reiknað fyrir íslenska hestinn um helgina og var það birt nú í morgun í WorldFeng. Þegar Landsmót er haldið er nýtt kynbótamat iðulega reiknað að loknum vordómum á Íslandi til að hafa nýjar niðurstöður til að byggja röðun afkvæmahesta á. Alls bættust við frá vorinu 1.795 dómar frá sex löndum. Kynbótamatið byggir nú á tæplega 40.000 fullnaðardómum úr kynbótadómi og rúmlega 172.000 keppnisdómum. Það er því ljóst að árlega bætast við verðmætar upplýsingar sem styrkja grunn kynbótamatsins.
Hvað stóðhestana varðar eiga nú þátttökurétt í afkvæmasýningum á Landsmóti á Hólum fjórtán hestar; þrír til heiðursverðlauna fyrir afkvæmi og ellefu til fyrstu verðlauna fyrir afkvæmi. Þeir eru:
Heiðursverðlaun fyrir afkvæmi:
- Þráinn frá Flagbjarnarholti
- Adrían frá Garðshorni á Þelamörk
- Hreyfill frá Vorsabæ II
Fyrstu verðlaun fyrir afkvæmi:
- Hannibal frá Þúfum
- Skarpur frá Kýrholti
- Veigar frá Skipaskaga
- Pensill frá Hvolsvelli
- Útherji frá Blesastöðum 1A
- Safír frá Mosfellsbæ
- Kjuði frá Dýrfinnustöðum
- Rauðskeggur frá Kjarnholtum I
- Vökull frá Efri-Brú
- Dofri frá Sauðárkróki
- Vákur frá Vatnsenda
Ræktendum og eigendum hestanna er óskað innilega til hamingju með frábæran árangur og merkan áfanga. Haft verður samband við eigendur hestanna á næstu dögum til að skipuleggja afkvæmasýningar hestanna á Landsmóti.
Á föstudag var nýtt kynbótamat birt í WorldFeng en svo uppgötvaðist að keppnisdómar voru ekki rétt meðhöndlaðir í matinu. Þetta hafði áhrif á kynbótamat hrossa fyrir keppniseiginleikana en einnig aðra eiginleika. Því var ný kynbótamatskeyrsla sett í gang um helgina og rétt kynbótamat birt í WorldFeng í morgun.
/okg