Opinn fagráðsfundur – fagfundur sauðfjárræktarinnar

Fagráð í sauðfjárrækt boðar til fundar föstudaginn 1. mars. Þar verða kynntar niðurstöður úr ýmsum verkefnum tengdum sauðfjárrækt og umræða tekin um ræktunarstarfið.

Áherslur í kynbótastarfi ræddar
Gunnar Þórarinsson, form. fagráðs mun fara yfir helstu verkefni ráðsins og Eyþór Einarsson, ráðunautur yfir helstu þætti í kynbótastarfinu. Undir þessum lið verða fengnir fulltrúar frá þremur sauðfjárbúum til að færa fram sína sýn á áherslur í ræktunarstarfinu í nútíð og framtíð. Það eru þeir Eiríkur Jónsson, Gýgjarhólskoti, Jón Gíslason Hofi og bræðurnir Bjarki og Sigþór Sigurðssynir frá Skarðaborg.

Rekstur sauðfjárbúa
Á fundinum munu þau Maríu Svanþrúður Jónsdóttir og Eyjólfur Ingvi Bjarnason kynna helstu niðurstöður átaksverkefnis þar sem safnað hefur verið saman rekstrargögnum sauðfjárbúa árin 2014-2017.

Rannsóknarverkefni frá Lbhí
Flest ár eru unnin nokkur spennandi lokaverkefni af nemendum Lbhí sem tengjast sauðfjárrækt. Á fundinum verða kynntar niðurstöður úr þrem BS verkefnum sem unnin hafa verið undir handleiðslu Emmu Eyþórsdóttur og Eyjólfs Ingva Bjarnasonar. Verkefnin fjalla um vanhöld lamba, burðarerfiðleika og skyldleikarækt og eru höfundar þeirra þær Nanna Lilja Níelsdóttir, Pálína Pálsdóttir og Unnur Jóhannsdóttir. Þá mun Jóhannes Sveinbjörnsson fjalla um áhrifaþætti á haustþunga lamba, en nýverið kom út rit hjá LBHÍ sem byggir á uppgjöri gagna frá Hestbúinu fyrir 12 ára tímabil.

Um kjötgæði
Síðastliðið haust gerðu sérfræðingar hjá Matís samanburð á kjötgæðum skrokka af sambærilegum lömbum sem var slátrað annars vegar í handverkssláturhúsi og hins vegar í hefðbundinni afurðastöð. Guðjón Þorkelsson mun kynna niðurstöður úr þessu verkefni. Hann mun einnig segja frá hugmyndum sem Svíar eru að vinna með varðandi þróun á kjötmati. Þá munu þeir Óli Þór Hilmarsson hjá Matís og Eyþór Einarsson RML kynna nýjan bækling um meðferð sláturlamba og lambakjöts.

Sauðfjársjúkdómar
Charlotta Oddsdóttir, sérfræðingur á Keldum, mun gera grein fyrir niðurstöðum úr verkefninu “Öndunarfærasjúkdómar hjá sauðfé” sem gekk út á að skoða lungu í sláturlömbum og greina tíðni óheilbrigðra lungna auk spurningalista sem lagður var fyrir bændur. Charlotta mun einnig greina frá því hver staðan er í rannsóknum á lambleysi gemlinga. Síðan mun Hrafnkatla Eiríksdóttir kynna meistaraverkefni sitt í búvísindum frá Kaupmannahafnarháskóla sem fjallar um lungnaorma í sauðfé.

Fundurinn fer fram í Bændahöllinni og hefst kl. 12:30. Áætlað er að dagskrá ljúki kl. 17:00. Þátttaka er öllum opin.

ee/okg