Örmerkinganámskeið

Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins áformar að halda örmerkinganámskeið í desember. Að námskeiði loknu geta þátttakendur sótt um leyfi til örmerkinga hjá Matvælastofnun, á grundvelli laga um velferð dýra. Námskeiðin verða haldin á tveimur stöðum verði þátttaka nægjanleg:

  • Hvolsvöllur, fimmtudagur 6. desember.
  • Akureyri, fimmtudagur 13. desember.

Um er að ræða eins dags námskeið, bæði bóklegt og verklegt, u.þ.b. kl. 10:00-16:00. Námskeiðsgjald er kr 50.000,- með einni örmerkingablokk innifalinni í verði. Áhugasamir eru vinsamlegast beðnir um að skrá sig til þátttöku hjá undirrituðum – í síðasta lagi fyrir föstudaginn 30. nóvember næstkomandi:

  • Pétur Halldórsson, RML-Hvolsvelli: petur@rml.is / S: 516-5038 eða 862-9322.

Ath. að félagar í Bændasamtökum Íslands geta átt rétt á styrk úr starfsmenntasjóði BÍ. 

Sjá nánar:

Starfsmenntasjóður BÍ

ph/okg