Örmerkingar - munið að skila inn fyrir 1. mars

Rétt er að minna á að fyrir 10 mánaða aldur eiga öll folöld að vera grunnskráð og einstaklingsmerkt. Þeir sem enn eiga ómerkt folöld ættu að huga að því að láta merkja þau við fyrsta tækifæri. Ekki er innheimt gjald fyrir grunnskráningu á folöldum til 1. mars árið eftir fæðingarár en eftir þann tíma kostar grunnskráningin 2.500 kr. Pappírar varðandi einstaklingsmerkingar á folöldum þurfa því að berast fyrir 1. mars nk. á skrifstofur RML. Merkingaraðilar ættu því að kanna hvort enn leynast blöð í örmerkjabókunum sem eftir er að skila inn til skráningar.

Þess má geta að þegar þetta er ritað er búið að grunnskrá 3.698 folöld (lifandi 3.484), þannig trúlega er enn einhver fjöldi óskráður. Skráð trippi fædd árið 2018 eru 5.325 (lifandi 4.960).

Vinsamlegast sendið pappíra varðandi skýrsluhald á skrifstofur okkar á Selfossi eða Akureyri, þar sem skráning fer fram. Heimilisföngin eru:

RML
v/ skýrsluhalds í hrossarækt
Austurvegi 1
800 Selfoss

RML
v/ skýrsluhalds í hrossarækt
Óseyri 2
603 Akureyri

Hægt er að senda fyrirspurnir varðandi skýrsluhaldið á netföngin halla@rml.is eða agg@rml.is.

hes/okg