Örmerkingar - munið skil fyrir 1. mars

Rétt er að minna á að fyrir 10 mánaða aldur eiga öll folöld að vera grunnskráð og einstaklingsmerkt. Þeir sem enn eiga ómerkt folöld ættu að huga að því að láta merkja þau við fyrsta tækifæri. Þess má geta að þegar þetta er ritað er búið að grunnskrá 3.965 folöld (lifandi). Alls hafa 3.200 af þeim þegar verið örmerkt. Skráð trippi fædd árið 2024 eru 5.348 (lifandi ), þannig trúlega eru ríflega 1.000 folöld enn þá óskráð.

Vinsamlegast sendið pappíra varðandi skýrsluhald á skrifstofur RML á Selfossi eða Akureyri, þar sem skráning fer fram. Heimilisföngin eru:

RML v/ skýrsluhalds í hrossarækt Austurvegi 1 800 Selfoss

RML v/ skýrsluhalds í hrossarækt Óseyri 2 603 Akureyri Hægt er að senda fyrirspurnir varðandi skýrsluhaldið á netfangið rml@rml.is.

/okg