Pantanir á DNA-sýnatökubúnaði

Eins og auglýst var fyrr í vor verður ekki opið fyrir pantanir á sýnatökubúnaði fyrir DNA-sýni í sauðfjárrækt frá 15. júní til 15. ágúst. Þeir bændur sem vilja taka fleiri sýni hjá sér fyrir 15. ágúst þurfa því að hafa hraðar hendur og ganga frá pöntunum í síðasta lagi um helgina, en lokað verður fyrir pantanir frá og með mánudeginum 15. júní. Opnað verður aftur fyrir pantanir föstudaginn 14. ágúst.

/okg