Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins auglýsir eftir starfsmanni í rekstrarráðgjöf.
Starfs- og ábyrgðarsvið
- Starf í ráðgjafateymi RML sem sinnir rekstrarráðgjöf í landbúnaði.
- Vinna við rekstrar- og fjármögnunaráætlanir fyrir bændur.
- Vinna við rekstrargreiningar í búrekstri.
- Þróun og sala á ráðgjöf á landsvísu í samstarfi við aðra starfsmenn RML.
- Önnur verkefni s.s. vinna við gerð og þróun líkana í excel, þátttaka í nýsköpunarverkefnum og samskipti við fjármálastofnanir.
Menntunar og hæfniskröfur
- Háskólapróf sem nýtist í starfi.
- Góð kunnátta á excel er nauðsyn.
- Þekking á dk-Búbót bókhaldskerfinu eða sambærilegu kerfi er kostur.
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð skilyrði.
- Geta til að vinna undir álagi.
- Góðir samskiptahæfileikar.
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins er ráðgjafarfyrirtæki í eigu bænda sem sinnir landbúnaðarráðgjöf um allt land. Starfsemin er dreifð um landið á 13 starfsstöðvum. Við bendum áhugasömum á að hér á heimasíðunni er hægt að kynna sér starfsemina betur sem og að sækja um starfið.
Umsóknarfrestur er til og með 21. júlí. Nánari upplýsingar veita Karvel L. Karvelsson framkvæmdastjóri klk@rml.is og Berglind Ósk Óðinsdóttir boo@rml.is starfsmannastjóri.
Sjá nánar:
Sækja um starf hjá RML
klk/okg