Garðyrkjuráðunautur veitir alhliða og markvissa ráðgjöf í garðyrkju og ylrækt með það að markmiði að stuðla að aukinni framleiðni, hagkvæmni og eflingu þessarar mikilvægu greinar landbúnaðarins.
Ábyrgðarsvið:
- Markviss fagráðgjöf og þróunarstarf fyrir framleiðendur í ylrækt og garðyrkju.
- Uppbygging ráðgjafar á sviði garðyrkju.
- Þverfaglegt samstarf við ráðunauta á öðrum fagsviðum RML.
- Hugmyndavinna, nýjungar og mat á viðskiptahugmyndum.
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Háskólamenntun í garðyrkju/búvísindum/líffræði og þekking í rekstrarfræðum.
- Reynsla úr garðyrkju og þekking á starfsumhverfi greinarinnar.
- Reynsla og þekking á ráðgjafarstörfum.
- Metnaður, frumkvæði og leiðtogahæfileikar.
- Samviskusemi, skipulögð vinnubrögð og góð hæfni í mannlegum samskiptum.
Áhugasömum er bent á að sækja um hér í gegnum heimasíðuna, ekki seinna en 15. mars næstkomandi. Nánari upplýsingar gefur Berglind Ósk Óðinsdóttir starfsmannastjóri RML í gegnum netfangið boo@rml.is.
RML áskilur sér rétt til að velja hvern sem er úr hópi umsækjenda eða hafna öllum umsóknum sem berast.
Umsókn um starf
bpb/okg