Garðyrkjuráðunautur veitir alhliða og markvissa ráðgjöf í garðyrkju og ylrækt með það að markmiði að stuðla að aukinni framleiðni, hagkvæmni og eflingu þessarar mikilvægu greinar landbúnaðarins. Við leitum eftir einstaklingi sem hefur mikinn áhuga á garðyrkju og er tilbúinn til þess að setja sig vel inn í starfsumhverfi greinarinnar. Ráðningin er til eins árs en með möguleika á framlengingu.
Ábyrgðarsvið:
- Markviss fagráðgjöf og þróunarstarf fyrir framleiðendur í ylrækt og garðyrkju.
- Uppbygging ráðgjafar á sviði garðyrkju.
- Þverfaglegt samstarf við ráðunauta á öðrum fagsviðum RML.
- Hugmyndavinna, nýjungar og mat á viðskiptahugmyndum.
- Vinna við þróun og sölu á ráðgjöf á landsvísu.
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Háskólamenntun í garðyrkju/búvísindum/líffræði.
- Reynsla og þekking á ráðgjafarstörfum er æskileg.
- Metnaður, frumkvæði og leiðtogahæfileikar.
- Samviskusemi, skipulögð vinnubrögð og góð hæfni í mannlegum samskiptum.
Áhugasömum er bent á að sækja um hér í gegnum heimasíðuna, ekki seinna en 1. febrúar næstkomandi.
Nánari upplýsingar gefur Berglind Ósk Óðinsdóttir starfsmannastjóri RML í gegnum netfangið boo@rml.is.
Umsóknum skulu fylgja upplýsingar um menntun og starfsferil umsækjanda ásamt upplýsingum um umsagnaraðila.
Sjá nánar:
Umsókn um starf
klk/okg