Ráðunautur í jarðrækt

Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins auglýsir eftir starfsmanni sem gæti sinnt fjölbreyttu þróunar- og ráðgjafarstarfi á sviði jarðræktar og umhverfismála.

Starfs- og ábyrgðarsvið

  • Þátttaka í ráðgjafateymum RML sem sinna jarðræktar- og umhverfismálum.
  • Vinna við almennar leiðbeiningar í jarðrækt og á útiræktuðu grænmeti.
  • Ráðgjöf í jarðvinnslu, áburðargjöf og val á yrkjum.
  • Þróun og sala á ráðgjöf á landsvísu í samstarfi við aðra starfsmenn RML.
  • Önnur verkefni s.s. líkanagerð í excel og þróunarverkefni.

Menntunar og hæfniskröfur

  • Háskólapróf sem nýtist í starfi.
  • Þekking eða framhaldsmenntun á sviði jarðræktar og umhverfismála.
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
  • Þekking á verkefnastjórnun kostur.
  • Góðir samskiptahæfileikar.

Við leitum að einstaklingi með brennandi áhuga á landbúnaði í sínum víðasta skilningi og hefur metnað og frumkvæði til að vinna að ráðgjafastarfsemi RML. Gert er ráð fyrir að starfsstöð viðkomandi verði á einni af starfstöðum RML á Suðurlandi.

Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins er ráðgjafarfyrirtæki í eigu bænda sem sinnir landbúnaðarráðgjöf um allt land. Starfsemin er dreifð um landið. Við bendum áhugasömum á að hægt er kynna sér starfsemi RML enn frekar hér í gegnum heimasíðuna. Jafnframt er sótt um starfið í gegnum heimasíðuna, sjá tengil neðar. 

Umsóknarfrestur er til og með 18. maí. Nánari upplýsingar veita Karvel L. Karvelsson framkvæmdastjóri (klk@rml.is) og Borgar Páll Bragason fagstjóri (bpb@rml.is).

Sækja um starf

klk/okg