Ráðunautur í nautgriparækt

Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins auglýsir eftir ráðunaut til þess að sinna fjölbreyttri ráðgjöf í nautgriparækt.

Starfs- og ábyrgðarsvið:

  • Vinna í ráðgjafateymi RML.
  • Fjölbreytt ráðgjöf með áherslu á fóðrun og kynbætur í nautgriparækt.
  • Þróun og sala á fjölbreyttri ráðgjöf á landsvísu í samstarfi við annað
  • starfsfólk RML.
  • Önnur tilfallandi verkefni.

Menntunar og hæfniskröfur:

  • Háskólapróf sem nýtist í starfi og framhaldsmenntun á sviði fóðrunar,
  • kynbóta eða annarra þátta sem tengjast framleiðsluferlum í nautgriparækt æskileg.
  • Þekking á sviði landbúnaðar.
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
  • Geta til að vinna undir álagi.
  • Góðir samskiptahæfileikar.

Við leitum að einstaklingi með brennandi áhuga á nautgriparækt í sínum víðasta skilningi og sem hefur metnað og frumkvæði sem nýtast til að byggja upp þekkingu sem nýtist til að efla búgreinina. Gert er ráð fyrir að starfsstöð viðkomandi verði á Akureyri.

Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins er ráðgjafarfyrirtæki í eigu bænda sem sinnir landbúnaðarráðgjöf um allt land. Starfsemin er dreifð um landið á 13 starfsstöðvum. 

Við bendum áhugasömum á að hægt er kynna sér starfsemi RML enn frekar hér í gegnum heimasíðuna. Jafnframt er sótt um starfið í gegnum heimasíðuna, sjá tengil neðar. 

Umsóknarfrestur er til og með 15. maí.

Nánari upplýsingar veita Karvel L. Karvelsson (klk@rml.is) og Borgar Páll Bragason (bpb@rml.is)

Sækja um starf hjá RML

klk/okg