Rekstrargreining garðyrkju

Út er komin skýrslan „Rekstrargreining garðyrkju á Íslandi 2022-2024“ þar sem koma fram helstu niðurstöður úr verkefni í afkomugreiningu garðyrkjunnar.

Verkefnið sem þessi skýrsla byggir á er framhald verkefna sem unnin hafa verið af RML á síðustu árum þar sem leitast er við að varpa ljósi á rekstrarafkomu í garðyrkju á Íslandi á árunum frá 2019. Í þessari skýrslu er mest unnið með árin 2022-2024.

Aflað var upplýsinga frá einstökum framleiðendum garðyrkjuafurða með það að markmiði að átta sig betur á rekstri helstu framleiðslugreina íslenskrar garðyrkju. Í upphafi árs 2025 var gerður samningur við Atvinnuvegaráðuneytið um fjármögnun á öllum afkomuvöktunarverkefnum RML árin 2025 og 2026.

Í gagnasafninu sem unnið er með eru nú gögn frá framleiðendum sem samanlagt njóta u.þ.b. 90% þeirra opinberu stuðningsgreiðslna sem garðyrkjan fær. Það gerir okkur kleift að sýna tölur um heildarþróun greinarinnar yfir þetta árabil ef horft er á ákveðnar lykiltölur.

Í verkefninu er leitast við að ná sem raunhæfastri heildarmynd á garðyrkjuna og allar helstu greinar hennar þ.e. rótargrænmeti (kartöflur, rófur, gulrætur), ylrækt (tómata, agúrkur, papriku) sem og aðra ræktun (blóm, salat, kryddjurtir og fleira.) með það að markmiði að hafa eins góða yfirsýn á garðyrkjuna og kostur er.

Gögn og upplýsingar eru fengnar úr ársreikningum, landbúnaðarframtölum og öðrum bókhaldsgögnum í samvinnu við framleiðendur sem og úr Jörð.is, Afurð.is, Mælaborði landbúnaðarins, RSK.is og fasteignaskrá HMS. Að sjálfsögðu ríkir alger trúnaður um bókhaldsgögn þátttakenda og eru þau vistuð í lokuðum gagnagrunni.

Samantekt

Þó hér sé verið að fjalla um og vinna með gagnasafn sem inniheldur þetta stóran hluta garðyrkjunnar er rétt að hafa þann fyrirvara að töluverður eðlismunur er á rekstri hvort um er að ræða ylrækt eða ræktun rótargrænmetis. Það eru ákveðnir þættir sem rétt er að nefna almennt um árið 2024.

  • Afkoma er lakari að meðaltali í ylræktinni en betri í rótargrænmeti.
  • Breytilegur og fastur kostnaður á einingu hvort sem horft er á kíló eða flatarmál hækkar.
  • Framlegð afurðatekna hækkar almennt í greininni allri árið 2024.
  • EBITDA sem hlutfall af veltu hækkar hjá kartöflubændum en lækkar í ylræktinni.
  • Afkoma batnar í rótargrænmeti árið 2024 þrátt fyrir að ekki sé um sprettgreiðslur að ræða og uppskera sé minni.
  • Afkoma í ylræktinni er lakari árið 2024 hjá þeim búum sem mynda það meðaltal sem unnið er með og þá ekki síst vegna hækkunar á föstum kostnaði og þá ekki síst launum. Einnig munar um að opinberar greiðslur eru lægri þar sem ekki er um sprettgreiðslur að ræða árið 2024. Meðaltal segir þó ekki alla söguna þar sem breytileikinn er mjög mikil.
  • Ekki er farið í djúpa greiningu á annarri tegund ylræktar þ.e. blóm, salat o.fl. en þó ljóst að afkoman árið 2024 er lakari að meðaltali en árið áður.
  • Garðyrkjan í heild sinni skilar verri niðurstöðu árið 2024 en árið 2023.

Verkefni sem þetta er mjög mikilvægt fyrir greinina og afar jákvætt að mögulegt var að vinna áfram með gagnagrunninn í svipaðri stærð. Ákveðið hefur verið að halda áfram á sömu braut og vonandi verður þetta hér eftir eitt af þeim verkefnum sem stöðugt eru í vinnslu. Það nýtist bæði sem stjórntæki fyrir framleiðendur sem og upplýsingabanki um stöðu greinarinnar.

Sjá nánar hér: Skýrsla um rekstrargreiningu garðyrkju 2024