Mynd: Halla Eygló Sveinsdóttir
Búið er að taka saman fyrstu tölur um rekstur kúabúa fyrir árið 2025 og byggja þær á uppgjöri 85 kúabúa sem eru þátttakendur í samnefndu verkefni. Í meðfylgjandi töflu eru birt meðaltöl þessara 85 búa í samanburði við öll þátttökubú undanfarin ár.
Þessi 85 bú eru breytileg í stærð, skuldsetningu og rekstrarafkomu og hefur reynslan verið sú að þegar uppgjörið nær yfir þennan fjölda búa að þá munu tekju- og kostnaðartölur á hvern mjólkurlítra breytast óverulega þó búum fjölgi í uppgjörinu.
Þegar á heildina er litið er rekstrarafkoma búanna mjög svipuð og hún var árin 2023-2024. Þó er athyglisvert að sjá hvað búgreinatekjur alls hækka lítið milli ára en skýringuna er helst að leita í hlutfallslegra færri innlögðum geldneytum á hverju búi.
Skv. töflunni hækkar breytilegur kostnaður óverulega milli ára eða alls um 1 krónu á innveginn lítra. Tíðarfarið 2025 var mjög hagsætt og einkenndist af mikilli sprettutíð enda reiknast uppskera eftir heyjaðan hektara mun meiri en árin áður.
Í spá sem verkefnahópurinn gerði í skýrslu til Atvinnuvegaráðuneytisins var gert ráð fyrir að tap af nautgriparækt árið 2025 yrði um 8,9 krónur á innveginn lítra. Miðað við uppgjör þessara 85 kúabúa reiknast tapið mjög svipað spánni eða 9,2 kr./ltr.
Skuldahlutfall búa breytist lítið sem ekkert milli ára og eru vaxtagjöld enn há. Þau reiknast tæp 14% af heildartekjum eða um 33 kr./ltr. Hlutfall EBITDA af heildartekjum lýsir rekstrarhæfni búanna án tillits til afskrifta og fjármagnsliða. Ánægjulegt er að sjá það hlutfall vera 31% nú og hefur ekki áður mælst hærra í þessu afkomuvöktunarverkefni.
Vinna við frekari söfnun og úrvinnslu gagna er í fullum gangi. Haft verður samband við alla þátttakendur sem hafa verið með í verkefninu en jafnframt óskum við eftir nýjum þátttökubúum og tökum þeim fagnandi.
Frekari upplýsingar fást hjá m.a. Maríu Svanþrúði (msj@rml.is) og Kristjáni Óttari (koe@rml.is)
Uppgjör 85 búa 2025: Rekstur kúabúa 2022-2025