Riðuarfgerðargreiningar 2026

Fyrirkomulag og framkvæmd arfgerðagreininga verða með mjög svipuðu sniði í ár og á síðasta ári. Líkt og áður hefur verið kynnt er það Matís sem nú sér um greiningarnar fyrir RML, en gagnvart bændum er fyrirkomulagið það sama og áður, þ.e.a.s. að sýnum er skilað inn á starfstöðvar RML í Reykjavík og á Hvanneyri. Þar sem öll sýni eru skönnuð inn við móttöku hjá RML er ekki í boði að senda sýnin beint til Matís. Bændur forskrá sýnin á gripi í Fjárvís og greininganiðurstöður eru síðan lesnar inn í gagnagrunninn þar sem þær eru bændum aðgengilegar.

Verð og hvatastyrkir
Fullt verð á greiningu er 1.750 kr. + vsk.
Verð á hylkjum er óbreytt, 300 kr. + vsk.

Tilhögun hvatastyrkja frá Atvinnuvegaráðuneytinu verða með nánast sama hætti og árið 2025. Líkt og áður eru hvatastyrkir pr. sýni birtir með þeim fyrirvara að heildarfjárhæðin sem ætluð er í verkefnið dugi. Verkefnið verður gert upp í lok árs og byggir þá á stöðu skráninga í Fjárvís, 13. des 2026. Þá ætti að vera ljóst hvaða gripir eru settir á en til dæmis  eru sýni úr ásettum hrútum styrkt að fullu.

Forsenda fyrir hvatastyrkjum er að greiningarniðurstaðan frá rannsóknarstofunni sé skráð á grip í skýrsluhaldskerfinu Fjárvís.is.

Lagt er upp með að niðurgreiðslur/hvatastyrkir verði eftirfarandi:

  • Allir ásettir hrútar: 1.750 kr.
  • Hrútlömb undan V foreldri: 1.750 kr.
  • Hrútlömb undan MV foreldri: 875 kr.

Þak á fjölda hrútlamba sem er styrkt: 3,5 * fjöldi ásettra hrúta (miðað við 4* á búum sem flokkast sem riðu- eða áhættubú).

  • Gimbrar undan V foreldri: 1.750 kr.
  • Gimbrar undan MV foreldri: 875 kr

Ekki er greiddur styrkur á gimbrar sem eiga foreldri sem ber V/V eða MV/MV arfgerð. Hinsvegar er sú breyting frá reglum síðasta árs, að nú verða styrktar greiningar á gimbrum undan V/MV foreldrum (nema hitt foreldrið sé V/V) og eins þó annað foreldrið beri MV/MV ef hitt foreldrið er arfblendið fyrir V. En uppleggið er að þeir sem vilja gera greinarmun á V og MV við ræktun fái stuðning til að fylgja því eftir.

Þak á fjölda gimbra sem er styrkt: 2 * fjöldi ásettra hrúta.

Áfram er veittur stuðningur við greiningar á ám sem tilheyra áhættubúum.

Pöntun á sýnatökubúnaði
Hylki og tangir til sýnatöku er áfram hægt að panta í gegnum heimasíðu RML og bændur hvattir til að senda inn pöntun sem fyrst. Almennt er sýnatökubúnaðurinn sendur til bænda í pósti. Hinsvegar er tímabundið hægt að óska eftir því að fá sýnatökubúnað sendan á næstu starfsstöð og verður sá möguleiki til staðar til 1. apríl. Gert er ráð fyrir að pantanir verði þá aðgengilegar á starfsstöðvunum frá 13. apríl til 24. apríl og munu bændur fá tilkynningar í tölvupósti þegar þeirra pöntun er klár til afhendingar.

Áður en sýnatökubúnaður er pantaður er nauðsynlegt að bændur kynni sér vel hver áætluð þörf fyrir greiningar er á búinu og þekki reglur um hvatastyrki.

Nánar má finna allar upplýsingar um framkvæmd arfgerðagreininga í handbókinni „Framkvæmd arfgerðagreininga 2026“. 

Sjá nánar: 
Panta sýnatökubúnað
Framkvæmd arfgerðagreininga 2026

/okg