RML 10 ára - Afmæliskaffi á starfsstöðinni á Höfðabakka 9 í Reykjavík

Miðvikudaginn 6. desember næstkomandi verður opið hús á milli kl. 14-16 á starfsstöðinni okkar að Höfðabakka 9 - fjórða hæð - í Reykjavík (Bogahúsið). Stjórnendur RML verða á staðnum og við bjóðum bændum í nágrenninu og breiðum hópi viðskiptavina okkar og samstarfsaðila á höfuðborgarsvæðinu að koma við í kaffi og spjall um verkefni RML. Boðið verður uppá köku í tilefni 10 ára afmælisins.

Hlökkum til að sjá ykkur, öll velkomin!

 

/hh