Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins auglýsir eftir aðila sem gæti sinnt fjölbreyttum þróunar- og hugbúnaðarverkefnum í landbúnaði.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Þátttaka í þróunarteymum RML sem sinna hugbúnaðargerð og upplýsingatækni
- Útbúa þarfagreiningar fyrir forritara með áherslu á skýrsluhaldskerfi
- Verkefnastýring
- Prófanir
- Önnur verkefni s.s. líkanagerð í Excel og annað með aðstoð gervigreindar
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Háskólamenntun kostur
- Þekking eða framhaldsmenntun á sviði tölvunarfræði, tækni og/eða verkefnastjórnunar
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
- Góðir samskiptahæfileikar og góð þjónustulund
- Góð innsýn í hugbúnaðarlausnir
Við leitum að einstaklingi með brennandi áhuga á upplýsingatækni í sínum víðasta skilningi og hefur metnað og frumkvæði til að vinna að þróun á hvers kyns tæknilausnum fyrir landbúnað. Starfið er auglýst óháð staðsetningu en vinnustöð yrði á einni af starfsstöðvum RML.
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins er ráðgjafarfyrirtæki í eigu bænda sem sinnir landbúnaðarráðgjöf um allt land. Starfsstöðvar eru dreifðar um landið. Sótt er um starfið í gegnum heimasíðu RML og þar er einnig hægt að kynna sér starfsemina enn frekar.
Umsóknarfrestur er til og með 20. maí. Umsóknir eru meðhöndlaðar sem trúnaðarmál og verður öllum umsóknum svarað. Nánari upplýsingar veita Karvel L. Karvelsson framkvæmdastjóri, klk@rml.is og Þorberg Þ. Þorbergsson verkefnastjóri á fjármála og tæknisviði, thorberg@rml.is.
Sjá nánar:
Sækja um starf hjá RML
/okg