Röð hrossa á miðsumarssýningu á Gaddstaðaflötum 15.-19. júlí

Fyrsta miðsumarssýning ársins fer fram á Gaddstaðaflötum dagana 15.-19.júlí. Dómar hefjast stundvíslega kl. 8:00 mánudaginn 15.júlí. Yfirlitssýning verður föstudaginn 19.júlí.
Alls eru 128 hross skráð á sýninguna. Búið er að birta hollaröðun hér á vefnum og má nálgast hana með því að smella á tengil hér neðar.
Við biðjum eigendur og sýnendur að mæta tímanlega með hrossin til dóms svo að dómstörf gengi sem greiðast fyrir sig og tímasetningar haldist sem best.

 

Sjá nánar :
Röðun hrossa á kynbótasýningum.

Sigurlína/Halla/Helga