Röð hrossa á síðsumarssýningu á Rangárbökkum, dagana 10. til 13. ágúst

Röð hrossa á kynbótasýninguna á Rangárbökkum dagana 10. til 13. ágúst hefur verið birt.

Alls eru 86 hross skráð. Dómar hefjast mánudaginn 10. ágúst kl. 8:00 en byrjað verður að mæla fyrstu hross kl. 7:50. Sýnendur eru beðnir um að mæta tímalega. Yfirlitssýning verður fimmtudaginn 13. ágúst.

Nánar um sýninguna hér:
Rangárbakkar 10.-13. ágúst

Röð hrossa á sýningum vikuna 17. til 21. ágúst verður birt í næstu viku en þar eru 120 hross skráð á Rangárbökkum og 62 á Hólum í Hjaltadal.

/hh