Röðun hrossa á Akureyri 18.-20. júní

Síðasta kynbótasýning vorsins fer fram á Akureyri dagana 18.-20.júní. Alls eru 44 hross skráð á sýninguna og þeim skipt niður í fimm holl. Dómar mun hefjast þriðjudaginn 18.júní kl. 13:00. Yfirlitssýning verður fimmtudaginn 20. júní. 

Búið er að birta hollaröðun hér á vefnum og má nálgast hana með því að smella á tengil hér neðar.

Við biðjum eigendur og sýnendur að mæta tímanlega með hrossin til dóms þannig að dómstörf gangi sem greiðast fyrir sig og tímasetningar haldist sem best.

Sjá nánar:
Röðun hrossa á kynbótasýningum

sem/okg