Röðun hrossa á Gaddstaðaflötum 5. til 9. júní.

Röðun hrossa fyrir fyrstu kynbótasýningu vorsins hefur verið birt hér á síðunni. Dómar hefjast stundvíslega mánudaginn 5. júní kl. 8:00 á Gaddstaðaflötum. Alls eru 128 hross skráð á sýninguna. Sýningunni lýkur með yfirlitssýningu föstudaginn 9. júní.

Við viljum biðja sýnendur að mæta tímanlega svo hægt verði að halda tímasetningar sem best.

Sjá nánar:
Röð eftir dögum
Röð eftir knöpum

/okg