Röðun hrossa á Hólum 4.-7. júní

Kynbótasýning verður á Hólum í Hjaltadal dagana 4.-7. júní. Dómar hefjast stundvíslega kl. 8:00 þriðjudaginn 4. júní. Yfirlitssýning verður föstudaginn 7. júní. Alls eru 94 hross skráð á sýninguna. Búið er að birta hollaröðun hér á vefnum og má nálgast hana með því að smella á tengil hér neðar.

Við biðjum eigendur og sýnendur að mæta tímanlega með hrossin til dóms þannig að dómstörf gangi sem greiðast fyrir sig og tímasetningar haldist sem best.

Sjá nánar:
Röðun hrossa á kynbótasýningum

sem/okg