Röðun hrossa á kynbótasýningar í Spretti og á Gaddstaðaflötum vikuna 2.-5. júní

Kynbótasýning verður í Spretti í Kópavogi þriðjudaginn 2. júní og lýkur henni með yfirlitssýningu daginn eftir. Alls eru 31 hross skráð á sýninguna.

Sýningin á Gaddstaðaflötum stendur alla vikuna en þar eru 99 hross skráð. Dómar hefjast þriðjudaginn 2. júní og lýkur með yfirlitssýningu á föstudeginum 5. júní.

Dómar hefjast stundvíslega kl. 8:00 á báðum sýningunum, þannig að fyrsta hross þarf að vera mætt í mælingu rétt fyrir kl. 8:00. Við biðjum eigendur og sýnendur vinsamlegast um að mæta tímalega, þannig að dómstörf gangi sem greiðast fyrir sig og tímasetningar haldist.

Búið er að birta hollaröðun hér á vefnum og má nálgast hana með því að smella á tengil hér að neðan.

Sýning sem vera átti á Stekkhólma á Fljótsdalshéraði dagana 2.-3. júní fellur niður þar sem engin skráning barst.

Sjá nánar
Röð hrossa á kynbótasýningum

hes/okg