Röðun hrossa á kynbótasýningum vikuna 21. til 24. ágúst

Röðun hrossa á kynbótasýningunum á Hólum í Hjaltadal og Rangárbökkum við Hellu vikuna 21. til 24. ágúst hefur verið birt hér á heimasíðunni. Dómar hefjast stundvíslega mánudaginn 21. ágúst kl. 8:00. Alls eru 91 hross skráð á sýninguna á Hólum og 74 á Rangárbökkum. Báðum sýningunum lýkur með yfirlitssýningu fimmtudaginn 24. ágúst.
Við viljum biðja sýnendur að mæta tímanlega svo hægt verði að halda tímasetningar sem best.

Sjá nánar: 
Röð hrossa á kynbótasýningum

/okg