Röðun hrossa á kynbótasýningum vikuna 8.-12. júní

Kynbótasýningar verða á þremur stöðum vikuna 8. til 12. júní, á Gaddstaðaflötum, Hólum og Sörlastöðum. Búið er að birta hollaröðun hér á vefnum og má nálgast hana með því að smella á tengil hér fyrir neðan.

Sýningin á Gaddstaðaflötum stendur alla vikuna en þar eru 132 hross skráð. Dómar hefjast á mánudegi 8. júní og lýkur með yfirlitssýningu á föstudegi 12. júní. Á Sörlastöðum eru skráð hross 94 og hefst sýningin á mánudegi og lýkur með yfirlitssýningu á fimmtudeginum 11. júní. Á sýninguna á Hólum eru 76 hross skráð og hefst hún þriðjudaginn 9. júní og lýkur með yfirlitssýningu föstudaginn 12. júní.

Dómar hefjast stundvíslega kl. 8:00 á öllum sýningunum, þannig að fyrsta hross þarf að vera mætt í mælingu rétt fyrir kl. 8:00. Við biðjum eigendur og sýnendur vinsamlegast um að mæta tímalega, þannig að dómstörf gangi sem greiðast fyrir sig og tímasetningar haldist.

Sjá nánar
Röðun hrossa á kynbótasýningum

hes/okg