Röðun hrossa á Rangárbökkum dagana 18. og 19. maí

Á fyrstu sýninguna á Rangárbökkum, dagana 18. til 20. maí eru 52 hross skráð. Dæmt verður frá kl. 8:00 til 19:30 á mánudeginum og frá kl. 8:00 til kl. 16:30 á þriðjudeginum. Til að tímasetningar standist sem best biðjum við sýnendur og eigendur um að mæta tímanlega. Mælingar hefjast kl. 7:50 og þá þurfa hross að vera mætt og tilbúin í mælingu, þannig að dómstörf geti hafist kl. 8:00.

Sama á við um hollið eftir hádegið, dómar hefjast kl. 12:30 og þá þurfa hross að vera mætt í mælingu kl. 12:20 og fyrstu hross eftir kaffið þurfa að vera mætt 15:50.

Vinsamlega mætið tímanlega kæru sýnendur því það kemur sér vel fyrir alla aðila. Ef hross detta út með skömmum fyrirvara er gott að sýningastjóri sé látinn vita, mögulega er þá hægt að færa til hross úr öðrum hollum svo ekki myndist eyður. Sýningunni lýkur með yfirlitssýningu miðvikudaginn 20. maí.

Röðun hrossa fyrir fyrstu kynbótasýningu vorsins á Rangárbökkum hefur verið birt hér á síðunni.

Að lokum er rétt að minna á að síðasti skráningardagur á vorsýningar ársins er á föstudaginn 15. maí. Laus pláss eru á eftirtöldum sýningum:

Sjá nánar: 
Röð hrossa á kynbótasýningum
Skrá á kynbótasýningu
Upplýsingar um kynbótasýningar

/okg