Röðun hrossa í Spretti dagana 11.-14. júní

Kynbótasýning verður í Spretti í Kópavogi dagana 11. til 14. júní. Dómar hefjast stundvíslega kl. 8:00 þriðjudaginn 11. júní. Yfirlitssýning verður föstudaginn 14. júní. Alls eru 96 hross skráð á sýninguna. Búið er að birta hollaröðun hér á vefnum og má nálgast hana með því að smella á tengil hér neðar.

Við biðjum eigendur og sýnendur að mæta tímanlega með hrossin til dóms þannig að dómstörf gangi sem greiðast fyrir sig og tímasetningar haldist sem best.

Sjá nánar:
Röðun hrossa á kynbótasýningum

hes/okg