Þeir sem stefna að því að kaupa eða selja lömb í haust þurfa að hafa í huga að sækja þarf um leyfi hjá Matvælastofnun (MAST) fyrir tilsettan tíma.
Frestur til að sækja um söluleyfi er til 1. júlí. Bændur á líflambasölusvæðum hafa fengið söluleyfin ótímabundið. Þeir sem eru með slík leyfi ættu að vera tilgreindir á lista yfir bú með söluleyfi á heimasíðu MAST. Á líflambasölusvæðunum eru það því aðeins þeir bændur sem ekki hafa haft slík leyfi hingað til eða misst þau sem þurfa að muna að sækja um leyfi.
Líkt og á síðasta ári geta bændur í öðrum hólfum fengið leyfi til að flytja lömb með verndandi (V) eða mögulega verndandi (MV) arfgerðir á milli bæja og í sumum tilfellum yfir varnarlínur. Reglur um flutning á lömbum með V eða MV arfgerðir frá búum sem ekki tilheyra söluhólfunum byggja á því hver sjúkdómastaða búana er. Reglur sem birtar eru á heimasíðu MAST fylgja þessari frétt hér að neðan. Athygli er vakin á því að um þessi leyfi þarf að sækja árlega og fresturinn er til 1. júlí. Listi yfir bú sem hafa fengið söluleyfi er aðgengilegur á heimasíðu MAST og er uppfærður vikulega.
Þeir sem hafa hug á að kaupa lömb í haust, hvort sem er af sölusvæðum eða lömb með V eða MV arfgerðir utan söluhólfanna þurfa að sækja um kaupaleyfi. Frestur til að skila inn umsókn vegna kaup á líflömbum er til 1. september.
Umsóknareyðublöðin eru aðgengileg inn á þjónustugátt MAST og nánari upplýsingar um gildandi reglur varðandi sölu og kaup líflamba má finna á heimasíðu MAST en einnig fylgja þessar upplýsingar með hér að neðan:
Verklagsreglur fyrir flutning á lömbum með verndandi og mögulega verndandi arfgerðir m.t.t. riðu (tekið af heimasíðu MAST 24.06.2025):
1. Líflambasölusvæði:
Heimilt er að flytja af svæðinu lömb af öllum arfgerðum nema VRQ/x. Ekki er mælt með að flytja lömb með arfgerðina ARQ/ARQ þ.e. lömb af næmri arfgerð inn á riðusvæði.
2. Ósýkt svæði:
Heimilt er að flytja lömb af öllum arfgerðum nema VRQ/x milli bæja innan svæðisins.
Heimilt er að flytja lömb yfir varnarlínur inn í riðuhólf, að því tilskildu að þau séu með ARR/x (ef x er ekki VRQ) eða mögulega verndandi (MV) arfgerðirnar: T137/x (ef x er ekki VRQ), AHQ/AHQ, AHQ/C151 eða C151/C151.
3. Svæði innan riðuhólfs þar sem liðin eru meira en 7 ár síðan síðasta riðutilfelli var greint:
Heimilt er að flytja lömb yfir varnarlínur inn í riðuhólf og milli bæja innan hólfsins að því tilskildu að þau séu með ARR/x (ef x er ekki VRQ) eða mögulega verndandi (MV) arfgerðirnar: T137/x (ef x er ekki VRQ), AHQ/AHQ, AHQ/C151 eða C151/C151.
4. Svæði innan riðuhólfs þar sem riða hefur greinst á síðustu 7 árum:
Óheimilt er að flytja lömb út af svæðinu nema hrúta á sæðingastöðvar og að því tilskildu að þeir séu með ARR/x (ef x er ekki VRQ).
Riðubær: bær þar sem riða hefur verið staðfest og opinberar takmarkanir hvíla á.
Frá riðubæjum er ekki heimilt að flytja lömb fyrstu 2 árin eftir niðurskurð. Eftir það er leyfilegt að flytja ARR/ARR hrúta milli riðubæja í sama hólfi.
Áhættubær: bær sem hefur faraldsfræðilegar tengingar við riðubæ undangengin 7 ár fyrir staðfestingu riðunnar. Tengingarnar geta m.a. verið samgangur fólks og/eða fjár, samnýting aðhalds, fjárhúsa, tækja og tóla, fjárrag eða flutningar fjár. Matvælastofnun metur hvaða bæir falla hér undir.
Frá áhættubæjum er leyfilegt að flytja lömb með arfgerðirnar ARR/ARR og ARR/MV ásamt MV/MV (þar sem MV geta verið genasamsæturnar AHQ, T137 eða C151).
Aðrir bæir í riðuhólfi: þeir bæir í varnarhólfi þar sem riða hefur verið staðfest síðastliðin 7 ár, en eru hvorki riðubæir né áhættubæir.
Leyfilegt er að flytja lömb með ARR/x (ef x er ekki VRQ) til bæja innan hólfs með sömu eða verri stöðu gagnvart riðuveiki. Einnig er leyfilegt að flytja lömb með MV/MV arfgerð innan hólfs með sömu skilyrðum (þar sem MV geta verið genasamsæturnar AHQ, T137 eða C151).
/hh